Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þóra Birgisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Lundur 2

200 Kópavogur

99.500.000 kr.

988.083 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2327136

Fasteignamat

96.800.000 kr.

Brunabótamat

71.210.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2013
svg
100,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 9. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Lundur 2, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 kynna einstaklega bjarta og fallega 2-3ja herbergja íbúð með suður verönd og stæði í bílageymslu við Lund í Kópavogi. 
Eignin er skráð 100,7 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þarf er íbúðin  sjálf  88,4 fm. og rúmgóð geymslan 12,3 fm. Stæði í upphitaðri bílageymslu merkt B13.

Nánari lýsing; 
Um er að ræða einstaklega bjarta og rúmgóða íbúð á 1. hæð frá inngang (bílastæði)  í húsið sem er vel staðsett í kjarnanum í Lundi í Kópavogi.
Rúmgóð forstofa er með fataskápum upp í loft.
Komið er inn í opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum í suður og vestur. Þar er eldhús, borðstofa og rúmgóð setustofa.
Eldhús er með eikarinnréttingu, eyju með eldavé og háf yfir, þar er gott skápa- og bekkpláss.
Borðstofa er í góðu fllæði næst eldhúsinu,  gengið er út á stóran suðurpall frá borðstofunni. Pallurinn hefur nýlega verið yfirfarinn og er með góðum skjólfveggjum umhverfis. Setustofa í framhaldi borðstofu er með góðum gluggum  sem tryggja mikið og gott birtuflæði inn í alrýmið og gefur íbúðinni létt yfirbragð.
Rúmgott svefnherbegi með fataherbergi með góðum innréttingum er á gangi - orlítið aðskilið frá stofurýminu.
Baðherbergi er einstakleg rúmgott með innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og stórum "walk-in" sturtuklefa.
Þvottahús er innst á ganginum, þar er innrétting og góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eikarparket er á gólfum fyrir utan baðherbergi og þvottahús sem eru flísalögð.
Þessi íbúð er rúmgóð með sérstaklega góðu aðgeng sem  gæti hentað hreyfihömluðum einstakling vel.
Sameign er einstaklega snyrtileg og vel hugsað um rekstur húsfélags.
Í sameign á jarðhæð eru geymslur, geymsla þessarar íbúðar er vel staðsett og rúmgóð (12,3 fm), sameiginleg vagna og hjólageymsla er á jarðhæð við inngang. Í bílageymslunni er búið að gera ráð fyrir hleðslu rafmagnsbíla auk þess sem þar er sér stæði fyrir bílaþvott með búnaði til þess.
Umhverfis húsið er gróin og frágengin lóð og aðkoma  hin snyrtilegasta.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is

 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Þóra Birgisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Esja fasteignasala
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone
img

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. jún. 2017
42.750.000 kr.
51.900.000 kr.
100.7 m²
515.392 kr.
8. nóv. 2013
12.350.000 kr.
36.000.000 kr.
100.7 m²
357.498 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Esja fasteignasala

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
phone

Þóra Birgisdóttir

Sundagörðum 2, 104 Reykjavík