Lýsing
Nánar tiltekið eign merkt: 201, fastanúmer 207-4498, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Stærð íbúðar Eignin Eyrarholt 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-4498, birt .stærð 101.3 fm.
*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
- Sérgeymsla í kjallara
- Rúmgóðar suðursvalir með útsýni
- Sér þvottahús innan íbúðar
- Lítið og rólegt fjölbýli
- Góð staðsetning – stutt í þjónustu
Forstofu/hol, stofu og eldhús í alrými, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, suðursvalir, sérgeymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Rúmgóð forstofa með nýlegum skápum, parket/flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa í björtu alrými; útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Hvítt U‑laga eldhús með flísum milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók með útsýni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með nýlegum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg hvít innrétting, flísalagt í hólf og gólf, salerni, sturta, baðkar og gluggi.
Þvottahús: Inni í íbúð, með innréttingu, skolvaski og skápum, flísar á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara; auk þess sameiginleg hjóla-/vagnageymsla.
Bílastæði: Sameiginleg malbikuð stæði við húsið.
Lóð/bílastæði: Malbikuð bílastæði við húsið, falleg gróin lóð.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson Löggiltur fasteignasali , í síma 661 7788, tölvupóstur bo@stofnfasteignasala.is.
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.