Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurbjörg Sigfúsdóttir
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
Helgi Steinar Halldórsson
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
140,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 10. febrúar 2026 kl. 16:15 til 16:45

Opið hús: Hulduholt 2 103, 603 Akureyri, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. febrúar 2026 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Hulduholt 2A íbúð 103 - Nýbygging!

Virklega glæsileg og vönduð 140,8 fm 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýju fjölbýli í Holtahverfi. Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni.

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **

Íbúðin er 128 fm, fjögurra herbergja og samanstendur af inngangi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhúsi, stofu, tveimur barnaherbergjum og hjónaherbergi með auka baðherbergi inn af því. Einnig fylgir Íbúðinni 12,8 fm geymsla í kjallara (0003), svalir til suðurs (0111 – 6,9 m2) og verönd til norðurs (0116 – 21,1 m2), ásamt sérafnotahluta á lóð við suður hlið íbúðar.


 - Eigninni fylgir hluti í sameign, samkvæmt kaflanum um sameign.
 - Í bílakjallara fylgir eigninni eitt bifreiðastæði merkt B09.
 - Birt flatarmál séreignar er 140,8 m2.

Það helsta:
- Span helluborð, bakaraofn, combiofn, ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir.
- Sérsmíðaðar innréttingar, fataskápar og innihurðir.
- Steinn er á bekkjum í eldhúsi og á baðherbergi.
- Hljóðdempandi dúkur og innfelld lýsing í öllum loftum.
- Vínyl parket með fiskibeinamunstri.
- Einstök hljóðvist.
- Loftskiptikerfi.
- KNX Ljósastýring.
- Bílastæði í bílakjallara.

Skilalýsing fjölbýlishúss við Hulduholt 2

FRÁGANGUR INNANHÚSS
Gólfefni

Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með gólfefnum og innréttingum, allar innréttingar eru sérsmíðarar á verkstæði Húsheildar/Hyrnu á Akureyri. Gólf á baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð með MV shine cal prestigio 75x150 mm flísum frá Vídd. Gólfefni í sameign, andyri fyrstu hæðar eru 60x120 mm flísum MV X fior di bosco matt frá Vídd. Gólfefni á stiga og stigapöllum, Classic Structure 3943-031 teppi frá Parket og gólf. Gólfefni á sameign í kjallara, er epoxi málað. Gólf í bílakjallara er stálað steingólf.
Veggir
Útveggir kjallara eru steinsteyptir, ásamt veggjum lyftuhúsa. Aðrir útveggir eru úr krosslímdum timbureiningum, eingangraðir að utan með 100mm steinull klæddir með álkerfi. Veggir milli íbúða eru 28sm úr 2x 12 sm krosslímdum timbureiningum með 25 mm einangrun á milli eininga. Allir veggir eru með hljóðdúk og farmacell klæddir. Allir veggir innanhúss eru annarsvegar úr krosslímdu timbri eða léttir grindarveggir, allir veggir eru klæddir með farmacell, sandsparslaðir og málaðir með tveimur umferðum.
Loft
Loftið er hljóðdúkur frá Pons.
Gluggar og gler
Gluggar eru ál-trégluggar, framleiddir af Húsheild/Hyrnu. Gler í öllum gluggum er tvöfalt K-gler frá Íspan Akureyri. Við kaup íbúðar yfirtekur kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
Hurðar
Inngangshurð bílakjallara og svalahurðir eru framleiddar í verkstæði Húsheildar/Hyrnu á Akureyri. Svala rennihurðir koma frá AMG. Innihurðar í íbúðum eru framleiddar á verkstæði Húsheildar Hyrnu.
Innihurðar í sameign eru frá Birgisson.
Fataskápar og geymsluskápar
Allir skápar eru framleiddir á verkstæði Húsheildar/Hyrnu. Push to open er á öllum opnanlegum forstykkjum
Eldhús
Innrétting eru sérsmíðaðar frá Húsheild/Hyrnu úr harðspón ýmist úr dökkri eða ljósri eik. Þrýstiopnun er á innréttingu. Bekkplatan er úr steini frá Grantítsteinum og heitir Dector 20 mm. Skúffubrautir og hengsli eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Þrýstiopnun er á innréttingu. Öll tæki eru Smith tæki frá Smith og Norland, svart keramik helluborð með innbyggðri viftu, bakarafon, sambyggður bakara/örbylgjuofn, innbyggður ísskápur með frystihólfi, innbyggð uppþvottavél. Stálvaskur og Grohe blöndunartæki frá BYKO. Hljóðdúkur í lofti og innfeld lýsing. Handlaugar og blöndunartæki eru frá Byko.
Baðherbergi
Innrétting eru sérsmíðaðar frá Húsheild/Hyrnu úr harðspón ýmist úr dökkri eða ljósri eik. Þrýstiopnun er á innréttingu. Bekkplatan er úr steini frá Grantítsteinum og heitir Dector 20 mm. Spegill við innréttingu frá Íspan og innféld lýsing. Flísar á veggjum og gólfi frá Vídd. Vegghengt klósett frá BYKO, glerveggir í sturtu, innfelld Grohe blöndunartæki af vandaðri gerð frá BYKO. Hljóðdúkur í lofti og innfeld lýsing.
Þvottahús
Í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar af Húsheild/Hyrnu úr harðspón, ýmist úr ljósri eða dökkri eik. Þrýstiopnun er á innréttingu. Í þvottahúsi er skolvaskur úr stáli. Flísar á gólfi. Hljóðdúkur í lofti og innfelld lýsing. Grohe blöndunartæki frá Byko. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.
Sérgeymsla
Sérgeymslur í kjallara fyrir hverja íbúð.
Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita. stýring í hverju rými fyrir sig ásamt tengikistu.
Loftræsti- , vatns- og þrifalagnir
Loftræsti-, vatns-, og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgja frágengnir og hefðbundin dyrabjalla er í hverri íbúð. Loftnets- og tölvutengill verður í alrými. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu, íbúðareigandi verður að setja sig í samband við fjarskiptafyrirtæki varðandi virkjun ljósleiðara. Innfelld lýsing í öllm rýmum með birtustýringu.

FRÁGANGUR UTANHÚSS
Hjóla- og vagnageymslur
Hjóla geymsla er úti, aðrar geyslur eru innanhús ásamt tækni rýmum. Útveggir eru steyptir, geymsluveggir eru úr gifsi og epoxy gólf.
Sorp
Sameiginleg sorpgeymsla úti í djúpgámum, snjóbræðsla er utanum gámsvæði. Djúpgámar eru frá Molok
Lyftur
Lyftur frá Héðinn/ Schindler er í báðum stigahúsum.
Bílastæði.
Eitt stæði fylgir hverri íbúð í bílakjallara og sameiginleg stæði er á malbikuðu bílastæði fyrir framan hús. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir rafmagnshleðslu í bílastæði.
Þak
Þakið á 3 hæð er úr krosslímdu timbri, einangrað með steinull og varið með PVC dúk. Þak yfir innfeldum svölum er steipt með steinull og PVC svaladúk.
Svalir
Stærri svalir á 3 hæð eru með snjóbræðslu og flísalagðar með 60x120 mm flísum frá Vídd. Sólpallar á jarðhæð eru steyptir eða flísalagðir. Sérafnotareitur íbúða á jarðhæð er
hellulagður. Minni svalir eru flísalagðar með 60x120 flísum hjá Vídd. Svalahandrið eru ýmist steypt eða úr álklæddu krosslímdu timbri.
Svalalokun
Gert ráð fyrir möguleika á svalalokun.
Lóð
Stétt yfir bílakjallara er með snjóbræðslu ásamt bílastæði fyrir fatlaða.
Húsið er úr korsslímdum timbureiningum, einangrað að utan og klætt með alubond álklæðningu. Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu.

Byggingaraðili er Húsheild/Hyrna

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Helgi Steinar Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kasa fasteignir
Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone
img

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
Kasa fasteignir

Kasa fasteignir

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri
phone

Helgi Steinar Halldórsson

Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri