Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
parhús

Hraunás 10

210 Garðabær

229.000.000 kr.

856.075 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2256733

Fasteignamat

196.400.000 kr.

Brunabótamat

134.280.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
267,5 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega glæsilegt parhús með mikilli lofthæð og glæsilegu útsýni við Hraunás 10. Eignin er skráð 267,5 fm og skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, forstofuherbergi, alrými sem rúmar borðstofu, setustofu og eldhús, þrjú baðherbergi, sjónvarpshol, stórt þvottahús með fataherbergi og innbyggðan bílskúr. Húsið er staðsett á frábærum útsýnisstað innst í botnlanga við Hraunás í Garðabæ.  Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is

Nánari lýsing:

Efri hæð: Komið er inn í flísalagt anddyri. Frá anddyri er gengið inn í forstofuherbergi sem í dag er notað sem skrifstofa. Alrýmið er bjart og fallegt með gólfsíðum gluggum að hluta og fallegu útsýni út á hraunið, að Álftanesi, út á sjóinn og að Snæfellsjökli. Stofan og borðstofan er virkilega glæsileg með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og fallegum arinn. Frá stofu er gengið út á stórar svalir til suðurs og suð-vesturs. Eldhúsið var nýlega endurnýjað og er virkilega fallegt með sérsmíðuðum innréttingum frá HTH og taj mahal steini frá S. Helgasyni. Gestasalernið er með upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug. 

Neðri hæð: Gengið er úr holi efri hæðar hússins niður á neðri hæð um teppalagðan stiga með mjög fallegu handriði úr stáli, gleri og viði. Við tekur rúmgott sjónvarpshol með útgangi út á skjólsæla viðarverönd til suðurs og vesturs með skjólvegg. Hjónaherbergi er mjög rúmgott  með innbyggðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er rúmgott baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug.  Barnaherbergin eru þrjú, öll nokkuð rúmgóð með fataskápum. Baðherbergið á neðri hæðinni er með baðkari, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með handlaug. Þvottaherbergið er mjög stórt og veglegt með miklum innréttingum, vask og vinnuborði. Í hluta þvottaherbergis er fataherbergi með góðum innréttingum. Bílskúrinn er með flísalagt gólf, þakglugga, gluggum og göngudyr. Lóðið er fullfrágengin og glæsileg en viðhaldslítil með verönd, tyrfðri flöt og trjágróðri neðan við hús. Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum er fyrir framan húsið og þrjú hellulögð gestastæði eru þar við hliðina. 

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: darri@fstorg.is

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. feb. 2023
153.200.000 kr.
166.000.000 kr.
267.5 m²
620.561 kr.
24. ágú. 2022
124.150.000 kr.
87.500.000 kr.
267.5 m²
327.103 kr.
28. des. 2017
89.200.000 kr.
108.000.000 kr.
267.5 m²
403.738 kr.
26. júl. 2006
41.690.000 kr.
71.500.000 kr.
267.5 m²
267.290 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone