Opið hús: Bólstaðarhlíð 68, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 02 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Stutt í alla þjónustu m.a. skóla og leikskóla ásamt því að Kringlan er í göngufæri.
Lýsing eignar:
Forstofa/hol: náttúruflísar og parket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtuaðstöðu og nýlegur vaskskápur. Nýlegt wc og blöndunartæki.
Svefnherbergi: rúmgott, parketlagt og með fataskápum með rennihurðum.
Eldhús: parketlagt og með nýlegri hvítri innréttingum með flísum á milli efri og neðri skápa. Borðaðstaða er í eldhúsi.
Stofa: rúmgóð, björt og parketlögð með útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs.
Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla og sameiginlegt stórt og mjög snyrtilegt þvottaherbergi með sér tenglum fyrir hverja íbúð og vaski. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er með inngangi af framlóð.
Eftirfarandi viðhald hefur verið framkvæmt á undanförnum árum.
* Þak, þakkantur og þakennur voru yfirfarnar og lagfærðar.
* Árið 2016 var haldið áfram með viðgerðir á húsinu - gluggar lagaðir eða skipt um þá. Múrviðgerðir gerðar á austurhlið hússins.
* Árið 2017 var haldið áfram með múrviðgerðir á austurhlið hússins.
* Árið 2018 var skipt um 30 glerum/gluggum á austurhlið hússins og sú hlið máluð.
* Árið 2019 voru framkvæmdar viðgerðir á norður- og suðurgafl hússins og það svo málað. Ný handrið sett á svalahandriðin og þau hækkuð. Inngangur í húsið brotinn niður og steyptur upp á nýtt og málaður.
* Árið 2020 voru múrviðgerðir og vesturhlið hússins máluð, mála tré og blikkverk og skipta um gler og glugga eftir þörfum.
* Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.