Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Vista
fjölbýlishús

Borgarbraut 63 íb. 203

310 Borgarnes

69.500.000 kr.

939.189 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2540522

Fasteignamat

2.750.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
74 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Heldri borgarar

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:
Borgarbraut 63, 310 Borgarnes, íbúð 203.

Um er að ræða stórglæsilega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með bílakjallara. Íbúðir fyrir 55 ára og eldri eru á 2.–4. hæðum hússins, en á jarðhæðinni er heimavist nemenda við Menntaskóla Borgarfjarðar. 
Húsið er staðsteypt, einangrað og útveggir klæddir seltuþolinni álklæðningu. Gluggar og útihurðir eru ál/tré. Rúmgóðar svalir umlykja hverja hæð fyrir sig og aðskilur steyptur veggur svalir milli íbúða. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara.
Stærð íbúðarinnar er 68,3 fm. Að auki fylgir íbúðinni 5,7 fm geymsla í kjallara. Samtals er því stærð íbúðarinnar 74,0 fm skv. skráningu HMS. Svalir íbúðarinnar eru rúmgóðar og snúa til vesturs og norður. Ekið er í bílakjallara um aðrein móts við Heilsugæslu Borgarness. Lyfta er úr bílakjallara upp á hæðirnar. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð. Forstofa er flísalögð og sameignargangur lagður teppum frá Kjaran.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í hol. Þaðan er gengið í svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými. Gengið er úr stofu um rennihurð út á svalir. Gert er ráð fyrir möguleika á svalalokun.
Á gólfum íbúðarinnar er fljótandi harðparket (Mammut Oak) frá Birgisson. Vandaðar flísar eru í votrými frá Harðviðarvali samkvæmt skilalýsingu seljanda.

Hol: Parket á gólfi og sérsmíðaðir fataskápar.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og sérsmíðaður fataskápur.
Baðherbergi: Vandaðar flísar á gólfi og veggjum og sérsmíðuð innrétting. Vegghengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta. Öll tæki af vandaðri gerð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Parket á gólfi og sérsmíðuð innrétting. Helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Vönduð tæki frá Electrolux.
Stofa: Bjart og fallegt rými með stórum gluggum og útgengi á svalir.
Geymsla: Málað gólf, loft og veggir. Skilrúm og hurð úr stáli.
Bílastæði í bílakjallara: Stofnstrengur lagður í stæði tilbúinn til tengingar fyrir hleðslustöð rafbíls. Á lóð eru að auki sex bílastæði, þar af tvö fyrir hreyfihamlaða.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Hér er um mjög fallega og vandaða eign að ræða þar sem öll helsta þjónusta, svo sem verslun, heilsugæsla og sundlaug, er í göngufæri.
Áætlað er að íbúðin verði afhent í ágúst 2026.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

img
Þórarinn Halldór Óðinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone
img

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi