Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 94,4 m2, 4ra herbergja, íbúð á 2. hæð með fallegu útsýni í fjórbýlishúsi við Hjallahlíð 4 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 94,4 m2, þar af íbúð 88,8 m2 og geymsla 5,6 m2. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Við hlið inngangs í íbúðina er geymsla. Mjög stutt er í Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, glæsilega sundlaug og líkamsræktarstöð World Class. Eignin er laus til afhendingar strax við kaupsamning.
Húsið stendur á stórri og vel hirtri hornlóð. Vandað og vel hirt trégrindverk með gönguhliðum er í kringum alla lóðina. Góð LED ljósalýsing er á stétt við aðkomu á jarðhæð og í stiganum upp á aðra hæð. Þessi lýsing var öll endurnýjuð árið 2025. Hellulagða stéttin við aðkomu hússins er hituð upp með hitalögn frá frárennsli hússins. Bílstæði eru malbikuð.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var allt tréverk utan á húsinu ásamt ytra byrgði glugga málað af fagaðila árið 2024.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inná gang þar sem aðgengi er að góðu geymslulofti yfir íbúðinni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbregi) er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er L-laga innréttingu með og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Geymsla er við hlið inngangs 5,6 m2.
Verð kr. 76.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.