Opið hús: Grandavegur 47, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 08 07 05. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. mars 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:47.
Lýsing
Íbúðin er skráð 65,8 fm samkvæmt HMS. Til viðbótar er um 5 fm sérgeymsla í kjallara sem ekki er talin með í birtri stærð eignarinnar.
Skipulag eignar er eftirfarandi: Anddyri, baðherbergi, eldhús, þvottahús/búr, hol, svefnherbergi og stofa með útgengi á yfirbyggðar svalir með miklu útsýni.
Í húsinu er aðgangur að sameiginlegum veislusal á efstu hæð með miklu útsýni. Á jarðhæð er aðstaða fyrir íbúa, þar á meðal saunaklefi, heitur pottur og sturtur.
Eignin er ætluð 60 ára og eldri og þurfa kaupendur samkvæmt áhvílandi kvöð á eigninni að vera í Félagi eldri borgara (www.feb.is)
Nánari lýsing
Anddyri: Parket á gólfi og tvöfaldur fataskápur.
Stofa: Harðparket á gólfi. Gluggar á tvo vegu, þar af einn gólfsíður. Útgengt er á yfirbyggðar svalir.
Eldhús: Harðparket á gólfi. Upprunaleg og vel við haldin eldhúsinnrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Ofn í vinnuhæð og span helluborð. Pláss er fyrir uppþvottavél og borðkrókur við glugga.
Þvottahús/búr: Inn af eldhúsi. Vaskur, hillur, tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir þurrkara. Epoxíð á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og þrefaldur fataskápur. Stór gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi og innrétting með skápaplássi.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, um 5 fm, ekki talin með í birtri stærð eignar.
Sameign:
Sameign er vel um gengin og eru tvær lyftur í húsinu.
Íbúar hafa aðgang að veislusal með miklu útsýni á efstu hæð.
Á jarðhæð er líkamsræktaraðstaða, nýlegur heitur pottur og sauna.
Húsvörður er starfandi í húsinu.
Samkvæmt eiganda þá er verið að breyta eignaskiptasamningnum fyrir eignina og verður þá geymslan partur af séreign og bætist við fermetratölu eignarinnar.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala ehf. - Sími: 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lghf., runara@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.