Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason lgfs, brynjolfur@heimili.is
Nánari lýsing.
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Ljós og falleg innrétting með miklu skápaplássi, góðri vinnuaðstöðu og flísum á milli efri og neðri skápa. Í eldhús er rúmgóður borðkrókur og stór gluggi með útsýni til sjávar. Á gólfi eru flísar.
Setustofa/borðstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og útgengi á stórar og skjólgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi: Stórt og rúmgott með stórum fataskáp. Á gólfi er parket.
Barnaherbergi: Parketi á gólfi og laus fataskápur innan herbergis.
Baðherbergi: Stór eldri innrétting, mikið skápapláss, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísalagður sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins, aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Á bak við hús er sameiginlegur garður og nýleg sameiginleg timburverönd.
Að sögn seljanda var húsið múrviðgert og málað árið 2019, þakjárn endurnýjað sem og hluti af borðaklæðningu, þakkantur og rennur.
Falleg íbúð á frábærum stað í Vesturbænum þar sem er stutt í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug og alla helstu verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.