Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

953 Spánn - Costa Blanca

99.400.000 kr.

649.673 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2001503

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
153 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI*

Glæsileg og vel hönnuð ný  einbýlishús á tveimur hæðum. Stór einkagarður með einkasundlaug á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi + gestasnyrting, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Góð verönd  framan við húsið og  stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Efri hæð:Rúmgóð og björt stofa/borðstofa  og eldhús í opnu og björtu rými. Svefnherbergi með sérbaðherbergi. Gestasnyrting.
 Neðri hæð: Tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg þjónustumiðstöð er í byggingu inni á svæðinu. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð frá 710.000 evrur  + kostn. (99.400.000 ISK,  gengi 1Evra=140ISK)

AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. des. 2021
42.850.000 kr.
50.200.000 kr.
70.4 m²
713.068 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.