Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Vista
sumarhús

Gunnarsbraut 13

806 Selfoss

29.900.000 kr.

577.220 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2279314

Fasteignamat

26.100.000 kr.

Brunabótamat

27.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2005
svg
51,8 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:
Gunnarsbraut 13, 806 Selfoss

Sumarhús  í grónu og eftirsóttu hverfi í Reykjaskógi skammt frá Laugavatni.
Eignin er skráð 51,8 fm en það eru 2 geymslur og viðbygging sem er óskráð, eignin hefur fengið gott viðhald.

Að innan skiptist eignin í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi, stofu og eldhús. Viðbygging er með salernisaðstöðu, sturtu og sauna, Einnig er góð geymsla/vinnustofa.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Stofa og eldhús eru í sama rými, parket á gólfi og útgengt á suðurpall úr stofu. Ágæt eldhúsinnrétting og fínt pláss fyrir borðkrók.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu, góðir skápar og hirlsur eru í þeim. Á baðherbergi er sturta, salerni og vaskur. Útgengt á pall og þar er heitur pottur. (4500 lítra)
Fínt svefnloft er yfir hluta bústaðarins.
Viðbygging er með sérinngangi og þar er salerni með sturtuaðstöðu og gufubaði. Einnig er góð vinnuaðstaða eða mögulega hægt að útbúa herbergi.
Tvær geymslur eru staðsettar við anddyri hússins, önnur er köld og hin er upphituð og góð vinnuaðstaða.
Lóðin er kjarri vaxin og er þökulagður blettur framan við húsið.
Húsið er klætt með Canexel klæðningu og álgluggar. Góður pallur er í kringum hluta hússins.

Leigulóð 4699,0 m²
Hitaveita er í bústaðnum.
Ljósleiðarabox komið í húsið.
Svæðinu er lokað með símahliði og öflugt sumarhúsafélag er starfrækt á svæðinu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone