Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Aðalstræti 5

600 Akureyri

49.900.000 kr.

392.296 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144626

Fasteignamat

47.550.000 kr.

Brunabótamat

55.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1948
svg
127,2 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

4ra herbergja efri sérhæð í steyptu tvíbýli við Aðalstræti 5 á Akureyri - samtals 127,2 m²

Íbúðin skiptist í tvær forstofur, aðalinngang og bakdyrainngang, hol, tvöfalda stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi auk sérgeymslu í kjalla og sameiginlegs þvottahúss og geymslurýmis í kjallara.


Aðalinngangur er frá Aðalstrætinu á vesturhlið hússins og þar er farið upp steyptar tröppur.  Á austurhlið hússins er bakdyrainngangur hvar komið er inn á jarðhæð hússins, og þaðan er stigi upp í eldhúsið.
Hol er í miðri íbúðinni og þar er plastparket á gólfum og úr holinu er farið inn í öll rými hæðarinnar.
Eldhúsið er með plastparketi á gólfi og málaðri upprunalegri innréttingu.
Stofan er tvöföld með plastparketi á gólfi.  Vængjahurð er á milli stofuhlutanna og er annar hlutinn nýttur sem þriðja svefnherbergið í dag.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með plastparketi á gólfi og úr öðru þeirra er útgangur á svalir til suð-vesturs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu og sturtuhorni.  Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.

Úr eldhúsinu er stigi niður að bakdyrainngangi (sérinngangi).  Þaðan er svo farið niður í kjallara og þar er sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla og rúmgott sameiginlegt geymslurými.  Útgangur er úr kjallara í garð.
Lóðin er gróin og í óskiptri sameign.  Núverandi eigendur hússins hafa skipt lóðinni þannig með sér að neðri hæð er með steypt bílastæði norðan við húsið og efri hæðin er með malborið bílaplan á suðu-vesturhorni lóðarinnar.  

Annað
- Þak var endurnýjað árið 2014
- Sér hiti og rafmagn er fyrir íbúðina.
- Tveir sérinngangar eru inní íbúðina.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Gott útsýni er frá húsinu - skemmtilega staðsett eign í Innbænum.
- Eignin þarfnast einhverra endurbóta.


 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone