Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Villamartin - penth

953 Spánn - Costa Blanca

41.400.000 kr.

250.909 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9300101

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
165 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐAR PENTHOUSE ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ*-*STÆÐI Í BÍLAKJALLARA*-*TIL AFHENINGAR STRAX*

Glænýjar og vandaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir á frábærum stað í  Villamartin örstutt frá nokkrum góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 25-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Göngufæri í verslanir og veitingastaði, líkamsræktarstöð ofl.  Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar um mitt ár 2023.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða 3 nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum samtals 94 íbúðum. Íbúðirnar eru  með tveimur eða þremur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæðum, með stórum svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og  stórum einka þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu. Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.
STÆÐI Í BÍLAKJALLARA FYLGIR ÖLLUM ÍBÚÐUM.
Íbúðunum fylgir einnig sér geymsla.


Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Villamartin Plaza og La Fuente.  Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. 
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Hægt er að velja íbúðir sem snúa í suður, vestur eða austur.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
3ja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og eitt  baðherbergi.  Verð frá 209.000 Evrum  (ISK 31.300.000) + kostn.
3ja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.  Verð frá 217.000 Evrum (ISK 32.500.000, gengi) + kostn.
4ra herbergja petnhouse íbúð, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.  Sér  þakverönd. Verð frá 276.000 Evrum (ISK 41.400.000) + kostn.

Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar strax.
Hægt er að fá þær afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar u m fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, stæði í bílakjallara, heitur pottur,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.