Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Daya Nueva

953 Spánn - Costa Blanca

44.800.000 kr.

422.642 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F8000102

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
106 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG SÉRBÝLI Á EINNI HÆÐ Í EKTA SPÆNSKUM BÆ STUTT FRÁ ALICANTE* 


Falleg, rúmgóð og vel skipulögð  sérbýli á einni hæð í Daya Nueva, fallegum spænskum bæ, stutt frá Alicante. Góð verönd út frá stofu, sérgarður með einkasundlaug. Um 30 mín akstur frá Alicante, 10-20 mín akstur niður á ströndina í Guardamar eða La Marina. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Örstutt labb í lokal veitingastaði í bænum, en stutt í stærri bæi eins og Almoradi (4km), Guardamar (15km), Rojales (6km) og Torrevieja (20km). Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.  Húsið  er vel skipulagt með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. 

FRÁBÆRT VERÐ

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými. Góð lofthæð með fallegri ofanbirtu.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og góðu fataherbergi. Tvö svefnherbergi til viðbótar, auka baðherbergi og rúmgott þvottahús/geymsla.
Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla. Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Möguleiki á þaksvölum. 
Stæði fyrir bíl inni á lokaðri lóð.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Bærinn er umlukinn gróðursælum sítrónuekrum, ætiþistlaræktun og fallegri náttúru.
Ótal góðir golfvellir á svæðinu.

Verð frá 299.000 Evrum. + kostn. (ISK. 44.800.000,- + kostn. miðað við gengi 1E=150 ISK) 
Fyrri áfangar uppseldir, nýr áfangi kominn í sölu.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkarhttp://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, 
Svæði: Costa Blanca, Daya Nueva,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.