Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1932
svg
253,8 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
svg
Aukaíbúð

Lýsing

Eignaver 460-6060

Hamarstígur 6 Akureyri:

Virðulegt, fallegt og þó nokkuð endurnýjað einbýlíshús á þremur hæðum á frábærum stað á neðri-Brekku á Akureyri. 


ATH: Húseignin er á tveimur fastanúmerum þ.e. 214-7056 og 214-7057.
Eignin er skráð 253,8 fm. en að auki eru 27,5 fm. skráðir sem sameign. Samtals 281,3 fm. 

Nánari lýsing:
 
Flott aðkoma er að húsinu að sunnanverðu og er hiti í stétt og tröppum að aðalinngangi hússins. 

l.hæð:
Forstofa, korkur á gólfi og þar taka við tveir inngangar í húsið.
Austari inngangurinn er í 2ja herbergja íbúð sem hefur verið í útleigu, pússuð og lökkuð gólfborð eru í stofu og svefnherbergi, þar er fataskápur. Eldhúsið er með eldri innréttingu. Baðherbergið er með dúk á gólfi og baðþiljur á veggjum, sturtuklefi. Nýlegir ofnar í þessum hluta hússins. 
Vestari inngangurinn, þar er komið inn í rúmgóða og fína stofu, pússuð og lökkuð gólfborð.
Borðstofa og eldhús koma saman í einu rými, pússuð og lökkuð gólfborð og falleg c.a. 10 ára hvít innrétting er í eldhúsi, mósaikflísar eru ofan bekkjar. 
Timburstigi er frá l.hæð upp á 2.hæð og þar eru 6 svefnherbergi og tvö baðherbergi.

2.hæð:
Svefnherbergin eru 6 talsins á 2.hæð hússins. 1) pússuð og lökkuð gólfborð. 2) pússuð og lökkuð gólfborð. 3) pússuð og lökkuð gólfborð. 4) parket og fataskápur. 5) parket 6) parket. 
Baðherbergi 1.) Dúkur á gólfi, upphengt WC, handklæðaofn, baðkar og neðri skápur. Flísar á hluta veggja. 
Baðherbergi 2.) Dúkur á gólfi og flísar á hluta veggjar góð innrétting, upphengt WC og sturtuklefi. 
Hol/gangur, þar eru pússuð og lökkuð gólfborð og frá gangi er farið út á "forseta" svalir sem snúa í suður. Geggjað útsýni !

Frá l.hæð að norðanverðu er stigi niður að bakinngangi og lóð. Þar er rúmgóð forstofa/geymsla í "bíslaginu" og  bakinngangur.
Hellulögð og verönd ásamt rúmgóðu hellulögðu bílaplani er norðan og vestan við húsið. 
Geymsluskúr á lóð fylgir með. 

Kjallari:
Í kjallara er búið að útbúa rúmgóða og fína sjónvarpsstofu, hiti í gólfi, flotað og lakkað. 
Þvottahús er stórt og rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og miklu skápaplássi. Hiti í gólfi, flotað og lakkað.
Inntaksrými er inn af þvottahúsi.
Í kjallara er einnig stórt ræktarherbergi og þrjár góðar geymslur. 

Annað:
- Frábær staðsetning, rétt hjá sundlaug Akureyrar og miðbænum.
- Útivistarsvæði er norðan við húsið, þar verður ekki byggt samkv. deiliskipulagi. 
- Fallegt hús sem býður uppá mikla möguleika.
- Rúmgóð lóð, góð aðkoma og bílastæði fyrir 2 bíla.
- Búið er að setja drenlögn í kringum húsið og einnig nýtt frárennsli út í brunn. 
- Snjóbræðsla í bílaplani. 
- Frábært útsýni og fallegt umhverfi. 
- Snjóbræðsla í bílaplani og hiti í stéttum fyrir aftan hús. 
- Hiti í gólfi á öðru baðherbergi á 2.hæð. 
- Innstunga fyrir rafmagnsbíl. 
- Búð er gera ráð fyrir að hægt sé að setja heitan pott norðan við húsið ( lagnir komnar útí garð ) 

- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671    /begga@eignaver.is
Tryggvi         s: 862-7919    / tryggvi@eignaver.is
Arnar            s: 898-7011    / arnar@eignaver.is

 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. mar. 2013
14.050.000 kr.
30.000.000 kr.
253.8 m²
118.203 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone