Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Daníel Rúnar Elíasson
Vista
lóð

Hafnarás Hvalfjarðarsveit 8

301 Akranes

3.250.000 kr.

Fasteignanúmer

F2334302

Fasteignamat

1.535.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.
svg
Útsýni

Lýsing

HÁKOT fasteignasala sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsir

* HAFNARÁS 8 * Eignarlóð í frístundabyggð (4.770 fm) í landi Hafnarsels, Hvalfjarðarsveit

Fylgja með teikningar að sumarhúsi.
 


Stutt lýsing á svæðinu.
Jörðin Hafnarsel er um 100 ha að stærð og liggur ofan þjóðvegar nr.1 norðan Hafnarár. Frá jörðinni er um 10 km til Borgarness og um 25 km til Akraness. Lóðir undir frístundahús eru níu og er eitt lögbýli í byggðinni. Landið sem lóðirnar eru í hallar á móti suð-vestri og er að stærstum hluta vaxið birkikjarri, en að hluta liggur það á melum. Á jörðinni Hafnarseli er stunduð skógrækt.
 
 
Á svæðinu er rafmagn og kalt vatn. Hver lóðarhafi sér um tengingar á vatnslögn úr götu inn á sína lóð. Stofngjald rafmagns greiðir hver lóðarhafi. Árgjald fyrir notkun á köldu vatni greiðir hver eigandi frístundahúss til landeiganda. Öllum lóðarhöfum er skilt að vera í félagi lóðareigenda í Hafnarseli.
 
Nokkur atriði úr skilmálum yfir frístundabyggðina.
Frístundahús skulu byggð úr steinsteypu og/eða úr timbri. Ekki er gerð krafa um þakform húsa. Litaval skal vera þannig að hús verði ekki áberandi í landslagi. Óheimilt er að hafa vegg- og þakfleti í ljósum litum s.s. hvíta, gula, bláa eða rauða.
Stærð frístundahúsa, geymsla eða gestahúsa hvort sem þau eru sambyggð eða sérstæð mega vera samanlagt allt að 3% af stærð lóða.
Sérhver lóðarhafi skal setja rotþró og siturlögn innan byggingarreits lóðar sinnar. Stærð og frágangur rotþróar og siturlagnar skal uppfylla ákvæði og skilyrði byggingarreglugerðar.


NÁNARI UPPLÝSINGAR: Daníel 899-4045 / 431-4045 - www.hakot.is
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.

.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildar fasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, umboði, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýslugjald kr. 43.400 (m/vsk).
4. Lántökugjald veðskuldabréfa samkvæmt gjaldskrá lánveitenda.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Fasteignasalan Hákot

Fasteignasalan Hákot

Kirkjubraut 12 (jarðhæð)300 Akranesi
phone
Fasteignasalan Hákot

Fasteignasalan Hákot

Kirkjubraut 12 (jarðhæð)300 Akranesi
phone