Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Brákarsund 5

310 Borgarnes

64.900.000 kr.

706.202 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2302074

Fasteignamat

19.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
91,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Hallir Fasteignamiðlun ehf. kynnir nýjar íbúðir í einkasölu að Brákasundi 5, Borgarnesi: Um er að ræða þriggja herb. íbúðir, 91,9 fm, en til viðbótar er sameiginlegt inntaksrými á jarðhæð sem er 2,7 fm. Hver íbúð skiptist í anddyri, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi ásamt alrýmis stofu og eldhúss með útgengi út á svalir á efri hæð eða hellulagðan sér afnotarétt á neðri hæð. Íbúðirnar á efri hæð hafa aukna lofthæð í alrými. Húsið er fjórbýlishús og er það á tveimur hæðum. Íbúðirnar fjórar skilast fullfrágengnar með gólfefnum. Baðherbergi, þvottahús og anddyri eru með flísalögð gólf og veggir baðherbergis flísalagðir að hluta. Önnur gólf eru parketlögð. Innréttingar, þ.e. eldhús, bað og skápar í herbergi og við inngang eru frá HTH og keypt í Ormsson. Eldhústæki eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Þvottahús eru óinnréttuð með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsið er byggt úr timbureiningum með steyptum undirstöðum og er reist á staðsteypta plötu. Timburklæðningar utanhúss eru kjarnafura með innþrýsta brunavörn, viðhaldslítið efni og má grána með tímanum. Húsið er með 6 bílastæðum hinumegin við götuna móts við húsið, en 2 bílastæði eru við hlið húss, alls 8 bílastæði. Bílastæði við hlið húss eru ekki séreign neinnar íbúðir.
 Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.
Í húsinu er loftskiptakerfi með endurvarma sem tryggir loftgæði þess. Um leið verður hitastjórnun í húsinu betri og varmendurvinnsla í samstæðu tryggir umtalsverðan orkusparnað ásamt því að ekki er þörf á því að opna glugga, því berst ekki hljóð og ryk inn um þá þannig að sparnaður verður einnig í þrifum.
Gluggarnir eru áltré gluggar, svartir að utan en hvítmálaðir að innan. Útidyrahurðir eru með 3 punkta læsingu frá Gilje og eru svartmálaðar að innan og utan.
Lóðin er þökulögð en hellulagt er að framan móts við innanga og við stiga. Sérafnotareitir eru hellulagðir. Bílastæði hinumegin við götu eru malbikuð. Lögð eru ídráttarrör frá inntaksrými að bílastæðum fyrir mögulega rafhleðslu við bílastæði og skilast lóðin án frágangs hleðslustöðva. Sorptunnuskýli eru utandyra og sameiginleg.
Frábær staðsetning og einstakt sjávarútsýni.
Nánari upplýsingar veitir Heiða, löggiltur fasteignasali í síma 7791929 eða á netfanginu heida@hallir.is.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun ehf því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Hallir Fasteignamiðlun ehf
Síðumúla 34, 108 Reykjavík
Hallir Fasteignamiðlun ehf

Hallir Fasteignamiðlun ehf

Síðumúla 34, 108 Reykjavík
phone
img

Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir

Síðumúla 34, 108 Reykjavík
Hallir Fasteignamiðlun ehf

Hallir Fasteignamiðlun ehf

Síðumúla 34, 108 Reykjavík
phone

Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir

Síðumúla 34, 108 Reykjavík