Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1990
175,2 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Útsýni
Sérinngangur
Opið hús: 4. maí 2024
kl. 14:00
til 15:00
Opið hús: Baughús 5, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd laugardaginn 4. maí 2024 milli kl. 14:00 og kl. 15:00.
Lýsing
Fasteignasala Sævars Þórs kynnir stór glæsilega fimm herbergja 175,2 fm íbúð við Baughús 5 í parhúsi á Keldnaholti í Grafarvogi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, 2 geymslur og bílskúr.
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu sem er flísalögð með vönduðum flísum og fataskáp. Því næst er gengið inn í hol en úr því er hægt að ganga inn í bílskúrinn, tvö svefnherbergi með viðarparketi, baðherbergi og svo upp á efri hæð íbúðarinnar. Baðherbergið á jarðhæð er með sturtuklefa og aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Stigi upp á efri hæð er með nýlegu harðviðarparketi.
Á efri hæð er eldhús þar sem hægt er að ganga beint út á svalir. Eldhúsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum og settur hiti í gólf og vandaðar gólfflísar. Stofan er með nýlegu harðviðarparketi og einnig með hita í gólfi. Úr stofunni er gengið út á baklóð. Stórkostlegt útsýni er frá stofunni og eldhúsinu sem snýr að Esjunni og nærumhverfi.
Á efri hæð eru tvö önnur svefnherbergi ásamt baðherbergi með baðkari. Svefnberbergi eru parketlögð með viðarparketi. Þá er geymsluloft sem gengið er upp í út frá svefnherbergi. Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Bílskúrinn er rúmgóður og inn af honum er annað geymslurými. Innkeyrslan er upphituð.
Þetta er virkilega skemmtilegt og fallegt parhús á þessum rótgróna og góða stað á Keldnaholtinu í Grafarvogi. Stutt er í alla þjónustu, rólegt og barngott umhverfi. Þetta er eign sem hefur verið haldið vel við og mikið endurnýjuð og býður upp á mikla möguleika. Stórkostlegt útsýni.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. des. 2020
71.100.000 kr.
85.900.000 kr.
175.2 m²
490.297 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024