Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Þóra Þrastardóttir
Hafliði Halldórsson
Vista
svg

91

svg

83  Skoðendur

svg

Skráð  25. apr. 2024

fjölbýlishús

Grímsgata 8 (501)

210 Garðabær

149.900.000 kr.

1.010.108 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2526956

Fasteignamat

9.390.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
148,4 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

*** Nýjar 3-5 herbergja íbúðir komnar í sölu ***
Fasteignasalan TORG kynnir: Nýtt í sölu glæsileg fullbúin 4ra herbergja (Penthouse) íbúð á 5.hæð, með stæði í bílageymslu við Grímsgötu 8 í Urriðaholti. Afhending er í júlí 2024.
*** Tvö baðherbergi – stæði í bílageymslu- Loftskiptikerfi- gólfhiti ***

Íbúð 501 er 4 herbergja íbúð á 5.hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Innan úr hjónaherbergi er baðherbergi. Birt stærð eignar er 148,4 fm og þar af er 5,6 fm geymsla og stæði í lokaðri bílageymslu merkt B-05. Íbúðin skilast fullbúin með harðparketi og á votrýmum eru flísar frá framleiðandanum NAXB, af gerðinni Pro fluid í litnum Ivory, frá Álfaborg, stærð 60x60 cm. Í eldhúsi fylgja vönduð eldhústæki frá Siemens. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir eldhúsi. Í eldhúsi er vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju, borðplata úr kvartssteini frá Silestone. Loftskiptikerfi. Myndavéladyrasími. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS trésmiðju.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@fstorg.is

Nánari lýsing eigna er hér að neðan: Grímsgata 8 er fimm hæða fjölbýlishús með einu stiga- og lyftuhúsi. Í húsinu eru 19 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Aðalinngangur hússins er á jarðhæð og hafa allar íbúðir sérinngang af svalagangi. Á jarðhæð er ein íbúð sem hefur sérinngang og sérafnotareit í suðlægar áttir. Sérgeymslur, vagna- og hjólageymsla, tæknirými og sorpgeymsla ásamt beinu aðgengi að bílageymslu með níu merktum bílastæðum eru á jarðhæð. 
Á 2.-5. hæð eru 18 íbúðir með inngöngum sem tengjast svalagöngum, stiga- og lyftuhúsi. Allar þær íbúðir eru búnar skjólgóðum svölum í suðlægar áttir. 

Almennt um byggingarnar: Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf. Burðarkerfi byggingarinnar er staðsteypt. Húsið er einangrað með steinull og klætt með álklæðningarkerfi sem veðurkápu ásamt steintrefjaplötum á stigahúsi og jarðhæð. Milliveggir innanhúss eru reistir úr blikkstoðum og klæddir tvöföldu gipsi hvoru megin. 
Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum á öllum rýmum. Baðherbergi eru með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Forstofur og gólf þvottahúsa eru flísalögð.

Eldhúsinnréttingar eru frá GKS trésmiðju. Eldhústæki eru frá Siemens. Baðherbergi eru flísalöggð með flísum úr Álfaborg. Á baðherbergi er handlaug, innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, og sturta með Unidrain niðurfalli.Í bílageymslu er gert ráð fyrir mögulegri tengingu rafbíla í öllum bílastæðum.
Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu. Lóð er fullfrágengin, hellulögð ásamt gróðri og þökulögn skv. teikningum.  

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@fstorg.is

Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortnar náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir. Sjá nánar um Urriðaholt: www.urridaholt.is.

Fylgdu mér á  Instagram og Facebook til að fá nýjustu upplýsingar um eignir til sölu og aðrar nytsamlegar upplýsingar um fasteignamarkaðinn. Vantar þig hjálp við að finna eign kíktu á https://verdmatfasteigna.is/vid-hjalpum-ther-ad-finna-draumaeignina/ Viltu vita hvers virði þín eign er ? www.verdmatfasteigna.is

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone