Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Lokastígur 5

101 Reykjavík

108.900.000 kr.

741.826 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2005994

Fasteignamat

91.200.000 kr.

Brunabótamat

54.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1928
svg
146,8 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

EINSTÖK EIGN! - FJÖLSKYLDUVÆN 147 FM ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 131,9 fm.

Um er að ræða átta herbergja íbúð á 2. hæð og rishæð í virðulegu steinsteyptu þríbýlishúsi byggðu árið 1928 á rólegri einstefnugötu í hjarta Reykjavíkur, upprunalega hannað af Guðmundi H. Þorlákssyni, forsmiði og byggingarmeistara.
Gengið er um sameiginlegt anddyri/stigagang með neðri hæðinni, komið er inn í lítið hol/gang með fatahengi og skáp. Til vinstri er gengið inn í stofurnar sem eru þrjár, tvær stofur og borðstofa. Úr borðstofunni er gengið inn í eldhúsið. Til hægri á gangi er hjónaherbergið og lítil snyrting, einnig er þar gengið inn í eldhúsið. Gengið er út á suðaustur svalir úr stofunni. Góður stigi er upp á efri hæð eignarinnar í enda eldhússins, kústaskápur undir stiga. Á efri hæðinni, sem er rishæð hússins eru nú þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gangur og sjónvarpshol sem áður var herbergi og hægt væri að breyta aftur í herbergi. Uppgefnir fermetrar frá HMS eða Þjóðskrá Íslands er skv. gamalli skráningu og er eignaskiptayfirlýsing gömul. Búið er að setja upp nýja skráningatöflu með nýjum teikningum af húsinu með uppfærðri fermetratölu skv. nýjum stöðlum sem skráðir yrðu með nýrri eignaskiptayfirlýsingu. Skv. nýju fermetratölunni er risið skráð 47,8 fm. en innanmáls gólfflötur hæðarinnar er um 55 fm.

2. hæð:
Gangur/hol: Bæði fatahengi og skápur, dúkur á gólfi.
Stofur/borðstofa: Gegnheilt parket á gólfum og rúmgóðar. Tvær stofur og gengið er út á suðaustur svalir úr stærri stofunni. Borðstofan er einnig mjög rúmgóð, rennihurð er inn í borðstofuna úr stofunum. Innangengt í eldhúsið.
Eldhús: Nýleg innrétting og tæki, glæsileg með miklu skápaplássi. Spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir. Barborðkrókur og korkparket á gólfi. Stigi upp á rishæðina, kústaskápur undir stiga.
Hjónaherbergi: Dúkur á gólfi og rúmgott, góðir fataskápar.
Salerni: Handlaug, flísar á gólfi og gluggi.

Rishæð:
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi, dúkur á tveimur og harðparket á þriðja. Gott skápa- og geymslupláss er undir súð í herbergjunum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, baðkar og innrétting við handlaug, gluggi og tengi fyrir þvottavél. 
Sjónvarpshol: Opið rými með korkparketi á gólfi, hægt væri að loka og bæta við einu herbergi í viðbót. 
Gangur/rými við stigagang: Korkparket á gólfi og geymsluskápar undir súð.

Sér rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni í kjallara með sérinngang og glugga, einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara. Lóðin er sameiginleg eignarlóð.

- Ljósleiðari komin í íbúðina.
- Að sögn eigenda hefur húsið fengið reglubundið viðhald í gegnum árin en búið er að endurnýja skolplagnir og drena, einnig þak ásamt þakgluggum. Árið 2014 var suðurhliðin sprunguviðgerð og múruð.

Frábær fjölskylduvæn íbúð á einstökum stað á Skólavörðuholtinu þar sem stutt er í miðbæinn, verslun, veitingastaði og menningarsvæði. Stutt í skóla, leikskóla, leiksvæði og almenningsgarða.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. nóv. 2014
35.000.000 kr.
44.900.000 kr.
131.9 m²
340.409 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík