Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
einbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

953 Spánn - Costa Blanca

222.700.000 kr.

638.109 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F9011710

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
349 m²
svg
4 herb.
svg
4 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG LÚXUSVILLA - FRÁBÆRT GOLFÚTSÝNI*

Glæsilegt og vel hannað nýtt  einbýlishús með glæsilegu útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Stór einkalóð með einkasundlaug.   Vel staðsett í Madrono hverfinu á Las Colinas golfvallasvæðinu, sem hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Frábær staðsetning inni á lokuðu svæði við golfvöllinn. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
ÓTAKMARKAÐ GOLF FYRIR TVO Í EITT ÁR Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM FYLGIR MEÐ.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, GSM 777 4277. karl@spanareignir.is


Einstök hönnun,   þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi + gestasnyrting.  Stór stofa, borðstofa og eldhús  í rúmgóðu opnu rými með góðri tengingu við útisvæði. Stór verönd, stór einkasundlaug og stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð, með frábæru útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar.  Bílskúr í kjallara og auk þess stæði við húsið. Stór eignarlóð, 1.075 fm. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- hjóla og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð og sundlaugargarður er inni á svæðinu. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð  1.485.000 evrur  + kostn. (ISK 222.700.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=150 ISK)
AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI. Tilbúið til afhendingar við kaupsamning.
Hægt er að fá húsið afhent fullbúið vönduðum húsgögnum og heimilistækjum.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, bílakjallari, air con, sér garður, einkasundlaug, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.