Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Þóra Þrastardóttir
Hafliði Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
231,9 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með pöllum á þrjá vegu, sólskála og heitum potti. 
Virkilega fallegt 5 herbergja raðhús með innbyggðum bílskúr.
Stofa, borðstofa, eldhús, sólskáli, tvö baðherbergi, fjögur svefnherbergi, geymsla og innbyggður bílskúr.

Upplýsingar veitir Jóhanna Gígja, löggiltur fasteignasali, í síma 662 1166 eða johannagigja@fstorg.is
Um er að ræða 231,9 fm hús, efri hæð er 112,8 fm, neðri hæð 91,9 fm og bílskúr 27,2 fm. 
Neðri hæð:
Forstofa er flísalögð, hvítur fataskápur. 
Baðherbergi inn af forstofu, flísalagt, sturta og hvít innrétting. 
Geymsla er inn af forstofu, parketlögð og með glugga. 
Innangengt er í bílskúr úr forstofu. 
Bílskúr með epoxy á gólfi, gluggar til suðurs, bílskúrshurðaopnari. 
Eldhús með hvítri innréttingu, steinn á borðum, eyja með plássi fyrir þrjá stóla. 
Borðstofa tengist eldhúsi í opnu rými, sérsmíðuð innrétting undir stiga. 
Stofa er rúmgóð og björt, gengið út í sólstofu og garð um rennihurð úr stofu. 
Sólstofa er lögð viðargólfi, glerlokanir á tvo vegu. 
Efri hæð:
Steyptur parketlagður stigi á milli hæða. 
Stórt hjónaherbergi með fataherbergi og svölum til austurs. 
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt, bæði baðkar og stór sturta í gólfhæð, hvít innrétting. 
Barnaherbergin á efri hæð eru þrjú, öll rúmgóð og með skápum. Úr einu þeirra er gengið út á vestur svalir. 
Þvottahús með hvítri innréttingu sem gerir ráð fyrir vélum í vinnuhæð, vaskur, flísar á gólfi. 

Bílskúr er innbyggður, bílskúrshurðaopnari og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl, epoxy á gólfi, heitt og kalt vatn.  
Á gólfum er hvíttað eikarparket, utan votrýma og andyrris sem eru flísalögð. 
Hiti í gólfi í forstofu og baðherbergjum.

Rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. 
Húsið er byggð árið 2007.
Húsið lítur vel út að utan, klætt með flísum og áli og hefur fengið gott viðhald. 
Leikskóli, barnaskóli, framhaldsskóli og verslun í fárra mínútna göngufæri.


Upplýsingar veitir Jóhanna Gígja, löggiltur fasteignasali, í síma 6621166 eða johannagigja@fstorg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi nýbyggingar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. apr. 2009
43.130.000 kr.
43.000.000 kr.
231.9 m²
185.425 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone