Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Hvassaleiti 26

103 Reykjavík

99.500.000 kr.

554.009 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2031608

Fasteignamat

89.900.000 kr.

Brunabótamat

72.080.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1960
svg
179,6 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Hvassaleiti 26, fallega, bjarta og vel skipulagða fimm til sex herbergja hæð á annarri hæð í fjögurra hæða húsi, ásamt bílskúr. Húsið er nýlega steinað að utan og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Verið er að skipta um glugga á austurhlið hússins. Íbúðin er í göngufæri frá Kringlunni og stutt er í skóla, leikskóla og út á stofnbrautir. 

Íbúðin sjálf er skráð 158 fm hjá HMS og bílskúrinn 21,6 fm, eða samtals 179,6 fm.

Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is.


Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á parketlagða forstofu og hol með góðum fataskáp. Í holi er gestasnyrting sem er flísalögð í hólf og gólf. 
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og útgengt er frá stofu út á rúmgóðar og nýuppgerðar svalir.
Eldhúsið er stórt og rúmgott með eldri viðarinnréttingu, korkur á gólfi.
Baðherbergi er nýlega endurgert með upphengdu salerni og fallegu baðkari á fótum með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf. 
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart, með dúk á gólfi og góðu skápaplássi.
Herbergi I er rúmgott og parket á gólfi. Mögulegt er að breyta herberginu aftur í hluta af stofunni með því að taka niður millivegg. 
Herbergi II er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skáp. 
Herbergi III er rúmgott með dúk á gólfi.
Herbergi IV er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skáp. 
Í kjallara er sér þvottahús fyrir íbúðina ásamt sér geymslu, hjóla- og vagnageymslu
Bílskúrinn er með sjálfvirkri hurðaopnun og er bílastæði fyrir framan hann. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum. 
Skipt hefur verið um allt gler í gluggum íbúðarinnar. Nú er yfirstandandi vinna við skipti á gluggum á austurhlið hússins, nýir dyrasímar verða settir upp
og rætt hefur verið um að skipta um teppi á stigagangi.

Þessi íbúð hefur allt sem þarf fyrir stóra fjölskyldu og Hvassaleitið er með eftirsóttari staðsetningum á höfuðborgarsvæðinu. Kringlan er í göngufæri og stutt er í Laugardalinn og miðbæinn. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni löggiltum fasteignasala í síma 8966020 eða í tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2018
60.000.000 kr.
55.300.000 kr.
179.6 m²
307.906 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík