Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
hæð

Holtsgata 12

220 Hafnarfjörður

59.900.000 kr.

683.010 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075857

Fasteignamat

55.850.000 kr.

Brunabótamat

34.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1946
svg
87,7 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu einstaklega fallega þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýli við Holtsgötu 12 í Hafnarfirði, einni af eldri og grónari götum bæjarins. Eldhúsið er í alrými með stofu og borðstofu. Holtsgatan er í göngufæri frá miðbæ Hafnarfjarðar, verslunum og þjónustu, skólum og leikskólum. Íbúðin er skráð 87,7 fm samkvæmt HMS. Þvottahús/geymsla innan íbúðar. Allar upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is. 

Nánari lýsing eignar:
Sérinngangur er í íbúðina þar sem komið er inn á flísalagt anddyri með góðu geymsluplássi undir stiganum upp á hæðina. Fallegur viðarstigi uppá hæðina
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu og góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar með parketi á gólfi. 
Baðherbergið er nýlega uppgert með flísum í hólf og gólf. Upphengt salerni og hornbaðkar með sturtuaðstöðu. 
Hjónaherbergið er rúmgott og parket á gólfi. 
Barnaherbergið er stórt og rúmgott. 
Þvottahús og geymsla er innan íbúðar, inn af eldhúsinu. 
Garðurinn er sameiginlegur, afar skjólgóður og gróinn.

Holtsgatan er ein af þessum grónu fallegu götum nálægt miðbænum þar sem umferð er lítil og stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða í netfanginu hallgrimur@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. apr. 2015
20.200.000 kr.
25.500.000 kr.
87.7 m²
290.764 kr.
9. jún. 2006
13.540.000 kr.
17.900.000 kr.
87.7 m²
204.105 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík