Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1904
71,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Kasa fasteignir - 461-2010
Spítalavegur 1 íbúð 201. Björt og nokkuð endurnýjuð 3 herbergja 71,9 fm íbúð á efstu hæð í fallegu húsi í innbæ Akureyrar. Eignin stendur hátt og er með frábæru útsýni yfir fjörðinn, stórar suðursvalir eru við eignina.
Eignin skiptist í forstofu, stigauppgöngu, gang, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi ásamt þvottahúsi og geymslu í kjallara.
Forstofa: Er með opnu fatahengi og stiga upp í íbúðina.
Eldhús: Innrétting með skúffum og skápum ásamt opnum efriskápum.
Stofa: Bjart rými með gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi. Lítil innrétting með vaskaskáp ásamt efri speglaskáp. Vegghengt salerni. Sturtuklefi með glerhurðum.
Svefnherbergi: Eru tvö í eigninni, bæði með fataskápum. Út frá öðru herberginu er gengið út á mjög rúmgóðar suðursvalir.
Geymsla og þvottahús: Eru í kjallara hússins og eru sameiginleg með íbúð á annari hæð.
Á árunum 2008 til 2012 var kaldavatnsinntakið, hitaveitu inntakið og rafmagnsinntakið endurnýjað. Skipt var um aðal rafmagnstöflu sem staðsett er í sameign í kjallara, og settur sér mælir fyrir hverja íbúð, greina tafla er svo í hverri íbúð. Einnig skipt um skólplagnir og neysluvatnslagnir og sett upp upphengt klósett. Í kjallara var hitaveitu inntak endurnýjað og sett upp sér hitaveitu grind fyrir hverja íbúð.
Fyrir þennan tíma var skipt um skólplagnir út úr húsinu og niður á plan ásamt því að húsið var drenað. Þak var endurbætt árið 2014 og svalir byggðar 2008 og svalahurð sett upp.
- Lakkaðar gólfþiljur eru á allri eigninni.
- Skemmtileg staðsetning í einum elsta hluta bæjarins.
- Ljósleiðari tengdur í íbúð.
- Steypta stéttar norðan við hús og hiti settur undir.
Nánari upplýsingar veita:
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. des. 2021
20.500.000 kr.
26.500.000 kr.
71.9 m²
368.567 kr.
25. okt. 2017
12.700.000 kr.
21.000.000 kr.
71.9 m²
292.072 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024