Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
parhús

Háengi 15

800 Selfoss

64.900.000 kr.

498.464 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2186313

Fasteignamat

60.100.000 kr.

Brunabótamat

59.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1976
svg
130,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu:  Fínt 130,2 fm parhús við Háengi 15 á Selfossi, byggt árið 1976.  Húsið er klætt með bjálkaklæðningu og járn er á þaki. Stór garður, afgirtur að hluta og stór sólpallur. Snyrtileg eign staðsett í hjarta bæjarins þar sem stutt er í skóla, verslanir og þjónustu.
Lítil stúdíóíbúð í bílskúr.


Húsið er 101 fm og sambyggður bílskúr er 29,2 fm samtals 130,2 fm. Húsið er byggt úr steypu og timbri. Eignin telur forstofu með fatahengi, rúmgott eldhús með góðri endurnýjaðri innréttingu og parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, hjónaherbergi með góðum fataskáp. Flísalagt baðherbergi með hornbaðkari, skáp og innréttingu. Einnig er innrétting á baðherbergi sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Stofa er rúmgóð með uppteknu lofti og innbyggðri led-lýsingu að hluta. Úr stofu er útgengt á stóran sólpall. Mulningur er í innkeyrslu.  
Í bílskúr er innréttuð lítil stúdíóíbúð með baðherbergi og litlu eldhúsi. Einnig er geymsla í hluta af bílskúr.
Í gegnum tíðina hefur húsið talsvert verið endurnýjað og má þar nefna járn á þaki, gólfefni, eldhúsinnrétting, innihurðir, rafmagn/rofar/tenglar svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er áhugaverð eign sem vert er að skoða nánar, frábær staðsetning! 

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is  
                                         
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. apr. 2021
35.900.000 kr.
47.500.000 kr.
130.2 m²
364.823 kr.
22. maí. 2012
17.950.000 kr.
18.000.000 kr.
130.2 m²
138.249 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi