Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Katla Hanna Steed
Vista
fjölbýlishús

Skipholt 1-306

105 Reykjavík

97.800.000 kr.

1.003.077 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2522294

Fasteignamat

31.000.000 kr.

Brunabótamat

26.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1960
svg
97,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta

Lýsing

Miklaborg kynnir í einkasölu til afhendingar við kaupsamning: Íbúð 306, rúmgóða 3ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Eignin er mjög heillandi staðsett í boganum sem setur mikinn svip á bygginguna. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum, Tvö svefnherbergi 10,6 fm og 12,5 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 4,1 fm bogadregnar suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 89,5 fm og geymsla í kjallara 8 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgfs s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.

Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.

Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/ . Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Athugið að innimyndir eru ekki af viðkomandi íbúð og eru hugsaðar til að sýna efnisval. Íbúar í Skipholti 1 eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem mörg ógjaldskyld stæði eru í kring td. í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og, Jórunn Skúladóttir lgf s:845-8958 og jorunn@miklaborg.is, Kjartan Ísak Guðmundsson lgf s:663-4392 og kjartan@miklaborg.is og Katla Hanna Steed lgf. s: 822-1661 eða katla@miklaborg.is.

img
Þórunn Pálsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
img

Þórunn Pálsdóttir

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík

Þórunn Pálsdóttir

Lágmúli 4, 108 Reykjavík