Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1986
svg
251,8 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: 

VESTURÁS 54 - GLÆSLEGT EINBÝLI MEÐ EINSTÖKUM GARÐI PÖLLUM OG HEITUM POTTI. 
Staðsetning er frábær, innsta hús í rólegri botnlangagötu. 
Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarparadísina Elliðaárdalinn. 

Húsið er alls 251,8 fm og skiptist það þannig að íbúðarrrými er alls 224,3 fm og bílskúrinn 27,5 fm. 

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæðin: 

Húsið er einstaklega vel skipulagt og eru öll herbergi hússins mjög rúmgóð. 
Rúmgóð og björt forstofa með skápum og útgengi á sólpall til suðausturs. 
Gangur með flísalögðu gestasalerni.
Innangengt af gangi í bílskúrinn og er geymsla þar á milli með góðri innréttingu. 
Stofurnar eru mjög rúmgóðar og bjartar með útgengi út á stóran sólpall með  einstaklega fallegum gróðri og skjólgirðingum. 
Sólskáli með miklum gluggum og einnig er þaðan útgengt úr á sólpalla til vesturs og er þar heitur pottur og frábær útiaðstaða. 
Eldhúsið er með vönduðum ljósum innréttingum og granítborðplötum. 
Efri hæðin: Er mjög rúmgóð og björt með sjónvarpsstofu í miðjunni og er þaðan útgengt út á vestursvalir. 
Þrjú mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi og skápum. 
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi og skápum. 
Baðherbergið er flísalagt, ljós innrétting, baðkar og sturtuklefi. 
Þvottahús  með innréttingu. 

Bílskúrinn er innbyggður 27,5 fm. 

Húsið hefur fengið toppviðhald alla tíð bæði að utan sem innan og hefur mikil natni ráðið ríkjum bæði varðandi húsið og lóðina sem umlykur húsið. 


Niðurlag:
Eignin Vesturás 54 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-6524, birt stærð 251.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Ólafur Björn Blöndal  í síma 6900811, eða olafur@gimli.is

Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík
phone