Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Vogatunga 47

270 Mosfellsbær

137.900.000 kr.

627.389 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2331492

Fasteignamat

122.500.000 kr.

Brunabótamat

108.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
219,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali steingrimur@fastmos.is **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt, 199,8 m2, 5 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Vogatungu 47. Eignin er skrá 199,8 m2, þar af raðhús 172,1 m2 og bílskúr 27,7 m2.  En auk þess eru rúmlega 20 m2 óskráðir og er eignin því um 220 m2.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, bílskúr, gluggalaust herbergi/geymslu, eldhús, stofu og borðstofu. 
Mikil lofthæð og innbyggð lýsing er á efri hæðinni. Gólfhiti með Danfoss hitastýringu. Gluggatjöld frá Sólargluggatjöldum. Mjög stórar svalir ca. 30 m2 með fallegu útsýni og stór timburverönd. 
Steypt bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan húsið og steyptar tröppur meðfram húsinu niður í bakgarð.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing
Efri hæð:

Forstofa: Er með fataskápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr.1: Er með harðparketi á gólfi. 
Gestasnyrting: Er inn af forstofu, flísalögð með vegghengdu salerni og innréttingu.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr úr forstofu. Bílskúrinn er með innréttingu, rafdrifnum bílskúrshurðaopnara og geymsluloft. Epoxý málning á gólfi.
Eldhús/borðstofa/stofa:  Er í opnu björtu og rúmgóðu rými með aukinni lofthæð, harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg hvít innrétting með eyju frá HTH. Dekton Steinn frá Rein á borðum. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur með vatns- og klakavél, bakaraofn og helluborð. Úr stofu er gengið út á stórar svalir (29,5 m2) í suðvesturátt með fallegu útsýni. 

Neðri hæð:
Svefnherbergi nr. 2 (Hjónaherbergi) Er með harðparketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á timburverönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 3 Er með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4: Er með harðparketi á gólfi
Fataherbergi: Er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott, flísalagt með innréttingu frá HTH, vegghengdu salerni, handklæðaofn og stórri Walk in sturtu með innbyggðum tækjum.
Þvottahús: Er rúmgott með innréttingu og flísum á gólfi. 
Gluggalaust herbergi/geymsla: Er með harðparketi á gólfi. Inn af því er geymsla með máluðu gólfi.


Verð kr. 137.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. nóv. 2018
7.440.000 kr.
68.500.000 kr.
199.8 m²
342.843 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ