Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
parhús

Sporatún 10

600 Akureyri

99.800.000 kr.

619.876 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2294857

Fasteignamat

89.250.000 kr.

Brunabótamat

77.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2011
svg
161 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Sporatún 10 - Vel skipulögð 5 herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með innbyggðum bílskúr - stærð 161,0m².  Rúmgóð steypt verönd er með vestur og suðurhlið hússins.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.  Ljósar flísar á gólfi og á milli skápa. Eyja nýtist sem eldhúsborð og innrétting fyrir borðbúnað.  Undir henni er flísalagt þannig sá möguleiki er fyrir hendi að fjarlægja eininguna.  
Stofa er í opnu rými með eldhúsi. Þar eru ljósar flísar á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Úr stofu er gengið út á stóra steypta verönd sem er með allri vestur hliðinni og nær suður fyrir húsið. Lagnir fyrir heitan pott eru til staðar og snjóbræðsla er í veröndinni.
Sjónvarpshol er til hliðar úr stofu og með flísum á gólfi. Möguleiki er að breyta því í fjórða svefnherbergið. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með rúmgóðum fataskápum og ljósum flísum á gólfi. Gengið er úr hjónaherberginu út á veröndina til vesturs.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vönduð innrétting, baðkar og walk-in sturta, upphengt klósett og handklæðaofn. 
Þvottahús er á tengigangi milli íbúðar og bílskúrs. Þar eru flísar á gólfi og góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og þar er einnig bekkur með vaska.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Innkeyrsluhurðin er með rafdrifnum hurðaropnara og í bílskúrshurðinni er gönguhurð. Fyrir framan bílskúrinn er steypt bílaplan með snjóbræðslukerfi.

Annað:
- Mjög vel um gengin og snyrtileg íbúð.
- Gott aðgangi.
- Snjóbræðsla er í steypum flötum, bæði bílastæði og verönd - lokað kerfi.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá hyrnu með spónlagðri eik
- Lýsing er í skyggni framan á húsi.
- Eignin er í einkasölu.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. apr. 2011
17.500.000 kr.
35.000.000 kr.
161 m²
217.391 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone