Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
hæð

Sólheimar 20

104 Reykjavík

107.900.000 kr.

672.693 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021462

Fasteignamat

90.950.000 kr.

Brunabótamat

64.320.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
160,4 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Sérlega falleg og mjög mikið endurnýjuð 5 herbergja sérhæð með sérinngangi ásamt bílskúr á vinsælum stað við Sólheima í Reykjavík. Hæðin hefur öll verið endurnýjuð á glæsilegan og vandaðan hátt sem og allir gluggar íbúðarinnar, svalahurð og útidyrahurð. Þvottahús er innan íbúðar en var áður herbergi og því hægt að bæta við herbergi þar sem einnig er þvottahús er í sameign hússins. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 160,4fm. og þar af er bílskúr 31,5fm. 


Forstofa rúmgóð með fataskápum og flísar á gólfi. Úr forstofu er innangengt niður í sameign í kjallara.
Hol/skáli með parketi á gólfi. Útgengt er út á mjög stórar suðursvalir. 
Eldhús hefur nýlega verið allt endurnýjað. Setuborð með kvarts steini á borðum, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa mjög rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og parket á gólfi. 
Hjónaherbergi stórt með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnehrbergi III með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi hefur nýlega verið allt uppgert með glugga, innangengri sturtu, upphengt salerni, góðri innréttingu. Flísalagt að hluta.
Sér þvottahús er í eigninni með innréttingum og góðri vinnuaðstöðu, flísar á gólfi. Auðvelt er að breyta þvottahúsi í herbergi en þannig var það áður þar sem sameigninlegt þvottahús er í kjallara.
Tvær sér geymslur tilheyra íbúðinni staðsettar í kjallara.
Bílskúr er staðsettur fjær húsinu, rúmgóður með gluggum, rafmagnsopnun og nýlegri bílskúrshurð. 

Í sameign hússins er sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð í húsinu er með sitt tengi. 

Gólfhiti er í eigninni nema í svefnherbergjum, þar eru ofnar.

Innan eignarinnar hefur eldhús, baðherbergi, innréttingar, innihurðir, ofnar, rafmagn, rafmagnstafla og gólfefni verið endurnýjað síðustu ár. 

Utandyra hefur húsið verið nýlega tekið í gegn og var farið í léttar múrviðgerðir, málun og lagfæringar á viðarverki.
Allir gluggar íbúðar eru nýir og svalahurð og útidyrahurð.
Frárennslislagnir voru myndaðar og hafa skólplagnir verið endurnýjaðar.
Allar vatnslagnir og ofnalagnir íbúðar eru endurnýjaðar. 
Nýjar raflagnir og ný rafmagnstafla í sameign en þar  er gert ráð fyrir hleðslustöðvum. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Kristján Baldursson hdl. og lgfs. í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is eða  Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Kristján Baldursson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. des. 2022
79.150.000 kr.
99.900.000 kr.
160.4 m²
622.818 kr.
6. feb. 2015
38.150.000 kr.
35.000.000 kr.
160.4 m²
218.204 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Kristján Baldursson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík