Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
188,7 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Nýtt á skrá! Glæsileg 188,7 fermetra íbúð með 39,6 fermetra þaksvölum
***BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ SÖLUMÖNNUM***
LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti nýjan áfanga í sölu við Sunnusmára 9 - 13 í Kópavogi. 69 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. Öll eldhústæki fylgja og er kæliskápur með frysti og uppþvottavél innbyggð í innréttingu.
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.
Íbúð 801: Er glæsileg 5 herbergja íbúð (4 svefnherbergi) með þaksvölum, tveimur baðherbergjum og þvottaherbergi. Heildarstærð er 188,7 fermetrar og er staðsett á áttundu hæð hússins. Íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu og 27,0 fermetra geymsla. Svalir eru 39,6 fermetrar að stærð með miklu útsýni. Afhending er áætluð í desember 2023 - janúar 2024 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Nánari lýsing hér neðar.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna: Sölusíða - Sunnusmári 9-13
BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í stóru alrými (rúmlega 50 fm) með stofu/borðstofu, 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þvottaherbergi. Útgengt á 39,6 fermetra þaksvalir úr stofu.
Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Svefnherbergin: Er fjögur talsins með fataskápum frá GKS. Baðherbergi inn af hjónaherbergi.
Stofa: Er mjög stór og rúmar setustofu/borðstofu. Opin við eldhús.
Þaksvalir: Eru 39,6 fermetrar að stærð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og eyjuháf).
Baðherbergi: Eru tvö talsins. Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útloftun.
Sérstæði í bílakjallara: Er staðsett í lokuðum bílakjallara
Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Ýmist með dökkri viðarárferð (hnota frá GKS) en svörtum efri skápum eða með ljósum innréttingum. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum.
Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.
Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
Hafðu samband til þess að fá nánari skilalýsingu.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jan. 2024
115.500.000 kr.
157.400.000 kr.
188.7 m²
834.128 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024