Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
einbýlishús

Ásholt 8

621 Dalvík

58.000.000 kr.

440.061 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2156748

Fasteignamat

34.600.000 kr.

Brunabótamat

73.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
131,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Ásholt 8 - Hauganes 

Um er að ræða gott fimm herbergja einbýlishús á einni hæð sem stendur á hornlóð á frábærum útsýnisstað. Stór timburverönd suðvestan við hús og einnig stór timburverönd norðaustan megin. Geymsluskúr og grillskúr á verönd. 

Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, geymslu, snyrtingu, baðherbergi og fjögur svefnherbergi.
 
Forstofa
með flísum á gólfi og opnu fatahengi. 
Stofa og borðstofa í opnu rými og er þar upptekið loft. Útgengi úr borðstofu út á timburverönd til suðvesturs. 
Eldhúsið er bjart og rúmgott. Góð innrétting með góðu skápaplássi og mjög gott vinnupláss. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskápur fylgir. Borð/eyja á hjólum og er því færanleg.  
Búr með opnalegum glugga og hillum. 
Þvottahús með opnanlegum glugga og útgengi út á verönd til austurs. Innrétting við vask auk efri skápa. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er annars vegar geymsla með glugga og hillum og snyrting. Einnig er lúga til að komast upp á háaloft/geymsluloft. 
Snyrting með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Opnanlegur gluggi, lítil innrétting við vask ásamt speglaskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, glerskilrúm í sturtu, gott skápapláss á baði og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru fjögur, öll eru þau með parketi á gólfi og fataskápum. 

Annað: 
-Ný útidyrahurð
-Parket sömu gerðar er á öllum rýmum íbúðar nema í forstofu, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og snyrtingu
-Gler og listar fyrir utan opnanlegu fögin endurnýjað fyrir ca 5 árum
-Þak endurnýjað ca 2003
-Húsið málað að utan fyrir ca 6 árum. 
-Ca 2015 var íbúðin mikið endurnýjuð að innan. 
-Lagnir fyrir pott undir palli

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. okt. 2007
8.698.000 kr.
13.500.000 kr.
131.8 m²
102.428 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone