Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Lóugata 6

270 Mosfellsbær

114.900.000 kr.

667.247 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516782

Fasteignamat

90.650.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
172,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 
  
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt - Glæsilegt 172,2 m2, raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Lóugötu 6 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 172,2 m2, þar af raðhús 136,1 m2 og bílskúr 36,1 m2. Eignin skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, gang, stofu/borðstofu, eldhús, bílskúr og geymslu (möguleiki er að nýta geymslu sem aukaherbergi). Innangengt er í bílskúr af gangi. Frábær staðsetning. Stutt í Helgafellsskóla sem er bæði grunn- og leikskóli. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir.

Húsið skilast í ágúst 2024 tilbúin til innréttinga samkvæmt skilalýsingu seljanda en auk þess er rafmagn fullfrágengið með free@home hússtjórnarkerfi og fullfrágengið loftskiptikerfi frá Systemair. Veggir og loft að innan verða fullmálaðir. Gólf verða rykbundin, en bílskúrsgólf verður frágengið með epoxy gólefni. Aðalbaðherbergi afhendist með flísalögðu gólfi og veggir í sturtu verða flísalagðir, aðrir veggir á baði málaðir með rakavarnarmálningu. Upphengt salernir og vegghengdur vaskur verða kominn á aðalbaðherbergi. Gólf í forstofu og gestsalerni verða flísalögð. Brunavarnarhurð á milli bílskúrs og íbúðar verður uppsett og frágengin, aðrar innihurðar fylgja ekki. Húsið verður afhent með öryggisúttekt.  

Bílaplan og gönguleið fyrir framan hús verður hellulagt og með snjóbræðslu. Ruslatunnuskýli fyrir þrjár tunnur. Timburverönd er sunnan við húsið. Lóð verður að öðru leiti þökulögð og grjóthleðsla er í landhalla á milli lóða við Liljugötu. Undir timburverönd eru ídráttarlagnir fyrir heitan pott. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöð er kominn að bílastæði.


Verð kr. 114.900.000,-

 
Nánari lýsing: Húsið er byggt af Byggingafélaginu Bakka ehf sem er fjölskyldufyrirtæki með yfir 40 ára reynslu af byggingu íbúðarhúsa. Burðarvirki hússins eru úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Útveggir eru úr forsteypum samlokueiningum frá BM Vallá. Þak er viðsnúið þak með filigran plötum með staðsteyptulagi ofan á. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með tvöföldu einangrunargleri. Steyptir fletir að utanverðu verða málaðir í hvitum lit. Gluggar og veggir í innskotum verða með brúnagráum lit. Gólfhiti er í húsinu og loftskiptakerfi frá Íshúsinu ehf. Gert er ráð fyrir free@home hússtjórnarkerfi eða sambærilegu. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ