Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Tryggvagata 23

101 Reykjavík

84.900.000 kr.

1.050.743 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2363653

Fasteignamat

71.250.000 kr.

Brunabótamat

62.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2018
svg
80,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

*** Glæsileg lúxusíbúð í hjarta Reykjavíkur *** Íbúðin er laus við kaupsamning!

Bókið skoðun hjá:
Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala / heimir@fastlind.is / 849-0672 eða Töru Sif Birgisdóttur lögg. fasteignasala / tara@fastlind.is / 847-8584


Lind fasteignasala kynnir glæsilega 80,8 fermetra 2ja herbergja íbúð (302) við Tryggvagötu 23 (Hafnartorgi) í nýlegu húsi byggðu af ÞG Verk í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 

Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og borðplötum úr vönduðu Meganite Carrara efni. Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Eignin skiptist í: Anddyri, gang, svefnherbergi, stofu/borðstofu, svalir, eldhús með eyju, baðherbergi með þvottarými inn af.

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum. Fataskápar eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og glæsilegri innréttingu frá Noblessa. Borðplata og klæðning er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum í tvær áttir. Stofa er opin við eldhús og rúmar setustofu og borðstofu.
Baðherbergi: Er afar glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 6,9 fermetrar að stærð.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Bílakjallari.
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.

Byggingaraðili.
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Hönnuðir.
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur