Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1977
svg
306,5 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni

Lýsing

Barmahlíð 2 - Vel staðsett 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með tveimur útleigueiningum (studíó íbúð og 3ja herbergja) á neðri hæðinni við litla botnlanga götu í Glerárhverfi - stærð 306,5 m²

Eigandi skoða skipti á minni eign

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Efri hæð:
  5 svefnherbergi, eldhús, búr, svefnherbergisgangur, borðstofa og tvær stofur.
Neðri hæð: Forstofa, geymsla, þvottahús, 2ja herbergja íbúð, studíóíbúð og lítill bílskúr. 2 svefnherbergi, þvottahús, hol, geymsla, vinnustofa, baðherbergi, gufubað og sólstofa.

Forstofa og hol á neðri hæð eru með grálökkuðum flísum á gólfi. Af holi er gengið upp lakkaðan parket lagðan stiga upp á efri hæðina. 
Eldhús, hvít lökkuð innrétting með dökkri bekkplötu og ljósum flísum milli skápa. Borðkrókur með útsýnisglugga til austurs. Lítið búr er til hliðar úr borðkróknum með plast parketi á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.  
Borstofa er með grá lökkuðu flísum á gólfi og hurð til vesturs út á hellulagða verönd. 
Stofurnar eru tvær og hlaðinn arinn er á milli þeirra. Loft í innri stofunni eru tekin upp og gluggar til þriggja átta. Ljóst plast parketi og lakkaðar flísar eru á gólfum. 
Svefnherbergisgangur eru með parketi á gólfi og við endann er hurð út á steyptar suður svalir. 
Svefnherbergin eru fimm á hæðinni, öll með parketi á gólfi og fjögur með fataskápum. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting með tveimur handlaugum, upphengt wc, baðkar, walk-in sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og tengdur við handklæðaofninn.
Þvottahús er á neðri hæðinni með lökkuðu gólfi og hvítri innréttingu. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúrinn. 
Bílskúrinn er skráður 38,6 m² en búið að skipta honum upp og útbúa íbúð úr hluta. Sá hluti sem tilheyrir efri hæðinni í dag er með ljósu harð parketi á gólfi. 

Í um helming bílskúrs og rými inn af honum hefur verið útbúin studíó íbúð með sér inngangi. Íbúðin var standsett árið 2020 og skiptist í andyri, eldhús, svefnrými og baðherbergi. Ljóst harð parket er á gólf og gráar flísar á baðherbergi. 
3ja herbergja íbúð er í suðurhluta neðri hæðar og er hún einnig með sér inngangi. Gólf eru ýmist með timburfjölum, flísum eða lökkuð. 

Annað:
- Þak var endurnýjað árið 2011
- Sáð var í lóðina að stærstum hluta árið 2023 eftir að trjágróður var fjarlægður. 
- Hitalögn er í bílaplani og í aðkomu að húsinu, tengt við affall.
- Vandað og vel staðsett hús, sem býður upp á ýmsa möguleika til útleigu á neðri hæð.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. sep. 2019
72.250.000 kr.
72.000.000 kr.
306.5 m²
234.910 kr.
17. feb. 2017
56.250.000 kr.
55.000.000 kr.
306.5 m²
179.445 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone