Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Urriðaholtsstræti 38

210 Garðabær

112.900.000 kr.

875.194 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509475

Fasteignamat

93.600.000 kr.

Brunabótamat

83.590.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
129 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna glæsilega og bjarta 129 fm 4ra herbergja lúxus endaíbúð á efstu hæð í litlu, nýlegu (2020) lyftuhúsi með útsýni til 3ja átta. 
Rúmgott stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Skjólgóðar stórar suður-svalir. Húsið er arkitekta hannað og mjög vandað. Húsið er klætt að utan með vandaðri klæðningu og því viðhaldslétt. 

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 129,0 fm og þar af er geymsla 7 fm.
Fyrirhugað fasteiganmat 2025 er 100.350.000 kr.

Nánari lýsing:

Forstofugangur með góðum skápum og parket á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús í mjög rúmgóðu og björtu alrými með parket á gólfi. Útgengt á góðar suður svalir.
Eldhús er einstaklega glæsilegt með granít borðplötum á innréttingu og eyju með flísar milli skápa. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Vínkælir í eyju og hægt að sitja við hana á barstólum. Bakaraofn í vinnuhæð og Combi ofn (venjulegur/örbylgja) þar fyrir ofan.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með frábæru skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi. Sjónvarpsherbergi í dag.
Svefnherbergi III er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er glæsilegt með góðri innréttingu, baðkari, sturtu og glugga. Flísar í hólf og gólf.
Þvottahús er inn á baðherbergi með innréttingu, skápum og skolvaski, en auðvelt væri að stúka á milli með rennihurð.

Fallegt harðparket á gólfum. Innfelld lýsing á köflum. Extra há lofthæð er í íbúðinni. 

Rúmgóð sérgeymsla í sameign. Fallegur garður í sameign, hellulagðir stígar og bílastæði. Sameign mjög snyrtileg.

Húsið er á góðum stað í Urriðaholtshverfinu Garðabæ, í göngufæri við skóla og ýmiskonar útivist og stutt í golfvelli og stofnbrautir. 
Húsið er glæsilegt og vandað, bæði að innan og utan. Aðkoma að húsinu er bæði að ofanverðu og neðanverðu. 

Falleg lúxus eign sem vert er að skoða. Sjón er sögu ríkari.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. des. 2020
41.350.000 kr.
72.200.000 kr.
129 m²
559.690 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík