Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1973
83,9 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
**Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun**Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á frábærum stað í Kópavogi við Fossvogsdalinn. Íbúðin er 83,9 fm og er talsvert endurnýjuð og vel skipulögð á 1.hæð með góðum suðursvölum. Í húsinu er virkt húsfélag og hefur húsið fengið gott viðhald undanfarin ár.
*Eign verður hvorki sýnd né seld fyrir opið hús*
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing á eign
Gengið er inn í forstofurými þar sem er forstofuskápur og fatahengi. Parket á gólfi.
Eldhús er með nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu og dökkum borðplötum, innangengt í stofu beggja megin við eldhúsið. Parket á gólfi.
Stofan er björt og falleg með gott útsýni yfir Fossvogsdalinn. Parket á gólfi.
Rúmgott og bjart hjónaherbergi með útgengi á 8,8 fm svalir sem snúa í suður.
Barnaherbergi er með upprunalegum innbyggðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2020. Flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu og baðkari.
Þvottahús er með snyrtilegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Steingólf.
Íbúðinni fylgir geymsla í sameign, 8,6 fm að stærð.
Fallega gróin lóð við suðurhlið hússins sem er vel við haldið með leikvelli sem er í sameign allra í húsalengjunni.
Framkvæmdir á íbúð að sögn seljanda:
- Íbúðin var parketlögð árið 2020.
- Baðherbergi gert upp árið 2020.
- Skipt um allar herbergishurðar árið 2020.
Framkvæmdir á húsi undanfarin ár að sögn seljanda:
- Suðursvalir voru yfirfarnar, múraðar og sett nýtt yfirborðsefni á svalargólfið 2021.
- Skipt um rennur á suðurhlið hússins.
- Yfirstandandi viðgerðir á þökum undanfarin ár, þak á Kjarrhólma 20 hefur verið yfirfarið og málað.
- Ný ljós við alla stigaganga að framan og aftan og dyrasímar endurnýjaðir.
- Ný rafmagnstafla í sameign.
- Rólur á leikvelli endurnýjaðar og til stendur að bæta við leiktækjum þar.
- Til stendur að setja rafhleðslustöðvar fyrir framan húsið í sumar.
Nánari upplýsingar veitir:
Jenný Sif Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 843 0087 / jennysif@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. nóv. 2023
50.450.000 kr.
23.950.000 kr.
83.9 m²
285.459 kr.
27. apr. 2021
37.450.000 kr.
47.900.000 kr.
83.9 m²
570.918 kr.
12. mar. 2019
34.300.000 kr.
36.900.000 kr.
83.9 m²
439.809 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024