Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Vista
lóð

FITJAHRAUN 6

851 Hella

4.500.000 kr.

Fasteignanúmer

F2342264

Fasteignamat

2.340.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu, eignarlóðina Fitjahraun 6, Rangárþingi ytra. Eignarlóð í Heklubyggð í með fjallasýn að Heklu og upp á hálendi. Stutt í ýmsa afþreyingu s.s.s útivist, veiði og hálendisferðir.
Smellið hér fyrir staðsetningu. 

Lóðin er gróin og stendur í skipulagðri frístundabyggð í landi Svínhaga Heklubyggð. Lóðin er 12.100,0 m², eignarlóð.  Búið er að leggja veg að lóðinni. Kalt vatn er komið að lóðarmörkum ásamt rafmagni. Hitaveita er ekki á svæðinu.
Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er hámarks byggingarmagn innan hverrar lóðar 300 m². Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi.
Innan byggingareits er heimilt að reisa sumarhús ásamt gestahúsi og verkfærageymslu. Mesta leyfilega vegghæð er 4,5 og mesta hæða í mæni er 6,0 miða við hæð jarðvegs umhverfis húsið. Hámarks stærð verkfærageymslu/bílskúrs er 100 m².
Fjöldi bygginga skal aldrei fara yfir fjóra. 
Sjá í landeignaskrá Fitjahraun 6 (851) land númer 198081.

Ekið er að Klettahrauni frá þjóðvegi 1 um Rangárvallaveg nr. 264 þar til komið er að Þingskálavegi nr. 268 og þaðan sem leið liggur að Klapparhrauni og þar að Fitjahrauni.

Landið er þáttakandi í verkefninu Hekluskógar, og fær árlega úthlutað birkiplöntum til gróðursetningar. Sumarhúsafélag er á svæðinu sem sér um sameiginlega hagsmuni árgjald árið 2023 var kr. 24.000.
Sjá hér deiliskipulag Svínhagi Heklubyggð, Rangárþing Ytra, yfirlitsuppdráttur


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði