Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
svg

377

svg

337  Skoðendur

svg

Skráð  11. júl. 2024

raðhús

Margrétarhagi 1b

600 Akureyri

118.500.000 kr.

751.904 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2523990

Fasteignamat

52.500.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
157,6 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Margrétarhagi 1b – Nýbygging
 
Margrétarhagi 1b - Glæsileg og skemmtilega hönnuð 3-4ra herbergja raðhúsaíbúð með bílskúr í nýju 5 íbúða raðhúsi í Hagahverfi – stærð 157,6 m²
Eignin er á þremur hæðum og skiptist með eftirtöldum hætti,
Jarðhæð:
Forstofa, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bílskúr.
Miðhæð: Eldhús, borðstofa, stofa og baðherbergi.
Efsta hæð: Sólstofa og þaksvalir.
 
* Íbúðin selst fullbúin og til afhendingar haustið 2024 - Myndir eru úr íbúð A
* Vandaðar innréttingar koma frá GKS og eru í hnotulíki.
* Harð parket verður á alrýmum, flísar á baðherbergjum og geymslu og teppi á stiga.
* Hljóðdempandi plötur verða í svefnherbergjum og hljóðdempandi dúkur í alrými á annarri hæð. Önnur loft verða máluð.
* Rúmlega 55 m² þaksvalir þar sem möguleiki er að koma fyrir heitum potti og útisturtu
 
Forstofa
verður með harð parketi gólfi og fjórföldum fataskáp.
Eldhús, vönduð innrétting í hnotulíki með grárri bekkplötu og svörtum vask. Mjúklokun á skúffum og skápum. Hnífaparabakki og ruslafata fylgir. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél fylgja með við sölu eignar. Helluborð er sléttfellt og gufugleypir blæs úr. Úr eldhús er gengið út á vestursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,5 m² og 12,9 m². Úr hjónaherbergi er hurð út á steypta verönd.
Baðherbergin eru tvö, á jarðhæðinni eru flísar á gólfi og á tveimur veggjum, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta með föstu gleri. Innrétting er í hnotulíki með svartri plötu og handlaug. Speglaskápur með lýsingu er fyrir ofan handlaug  og stakur skápur við hlið innréttingar, 50 cm breiður. Innrétting fyrir þvottavél/þurrkara er á baðherberginu, skúffur fyrir neðan og skápar fyrir ofan. Tvöfaldur skápur er við hliðina á innréttingunni. Baðherbergi á efri hæð er með flísum á gólfi og tveimur veggjum, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu með föstu gleri. Innrétting er í hnotulíki með speglaskáp fyrir ofan.
Stofa er með stórum gluggum til þriggja átta. Stofa er skv. teikningum 24,5 m² að stærð.
Sólstofa er á þriðju hæðinni með gluggum til þriggja átta og hurð út á um 55 m² þaksvalir sem verða klæddar með gagnvarðri timburklæðningu. Gengið verður frá öllum lögnum fyrir heitanpott að staðsetningu hans svo og niðurfalli s.b. teikningu. Þetta á einnig við um útisturtu sem gert er ráð fyrir á þaksvölum.
Bílskúr er skv. teikningum 21,9 m² að stærð. Gólf verða flísalögð með 30*30 flísum. Rafdrifinn opnari á innkeyrsluhurð. Innangengt verður í bílskúr úr forstofu. 
 
Skilalýsing eignar
 
Frágangur utanhúss

Húsið skilast fullbúið að utan. Burðarvirki hússins eru umhverfisvænar CLT einingar frá Binderholts í Austurríki.
Veggir eru 100 mm þykkir, klæddir með öndunnardúk undir 100 mm þykka harðpressaða steinull sem lokast með þar til gerðum brunadúk og lektum undir klæðningu.
Þök/þaksvalir eru einangruð með 110 mm -150 mm harðpressaðri steinull og ofan á það koma 2 lög af eldsoðnum tjörupappa.
Gólf þaksvala klæðast með ljósum gúmmíhellum.
Gengið er frá öllum lögnum fyrir heitanpott að staðsetningu hans svo og niðurfalli s.b. teikningu. Þetta á einnig við um útisturtu sem gert er ráð fyrir á þaksvölum.
Kaupandi sér sjálfur um hitastýringu og tengingu fyrir pott.

Klæðning - Húsið verður klætt með stallaðri klæðningu frá Joriside Tegund JI Sonora Vario Týpur 1-2 og 6. Litur er RAL 7022. Hluta til kemur slétt klæðning í lit RAL 1035 (pearl beige)
(https://www.joriside.com/en-gb/product-overview-joris-ide/product-overview/facade/facade-profiles/ji-sonora-vario-1--324)
Þak - CLT Einingar  með rakavarnarpappa, steinullareinangrun og 2 lögum af eldsoðnum tjörupappa. Ljósar gúmmíhellur koma á svalir.
Gluggar og Hurðir
Gluggar og útidyrahurðir eru vandaðir ál/trégluggar með tvöföldu einangrunargleri frá Ideal combi í Danmörku.   
Sólargler í gluggum til suðurs og austurs
Loftræstiventlar eru í flestum gluggum.
Bílskúrshurðir  eru með rafmagnsopnun.
Litur er RAL 1035 að utan og hvítir að innan.
Lóð - umhverfis húsið verður þökulögð. Stéttar verða steyptar út að gangstétt. Bílastæði verða malbikuð.
Snjóbræðsla er í steyptum stéttum  og bílaplani næst húsinu. Ekki er snjóbræðsla í aukstæðum.  r
Sorptunnuskýli eru forsteypt, 2 með hverri íbúð.
Steyptar verandir með snjóbræðslu eru austan við húsið með aðgengi frá hjónaherbergi.
Gert er ráð fyrir bílhleðslutenglum utanhúss við hverja íbúð en fullnaðarfrágangur er EKKI innifalin í verði. Kaupandi dregur sjálfur rafmagnskapal og setur upp hleðslustöð.
Frágangur innanhúss
Íbúðum verður skilað með handslökkvitæki, lyfjakassa og reykskynjurum samkv. teikningum.
Gólf íbúða er 12 cm járnbent steinsteypa á jarðhæð. Gólfhitalagnir eru ísteyptar.
Yfir 1 hæð eru 140 mm CLT einingar með plastdúk. Gólfhitalagnir eru settar í 60 mm flot undir gólfefni.
8 mm vandað harðparket frá Ebson ehf (Ocean Light natural) með hljóðdeyfidúk er á gólfum íbúða og flísar á baðherbergisgólfum, (Viken Beige) 60x60.
Bílskúrsflísar eru (30x30). 
Stigar eru teppalagðir með slitsterku efni ljósbrúnt að lit.
Veggir eru ýmist klæddir með 1 eða 2 lögum af 12,5 mm gipsplötum, spartlaðir og málaðir í ljósum lit (REYR) litakort Sæju í Slippfélaginu. Baðherbergisveggir skilast 2 flísalagðir, (60x60) og 2 málaðir.
Loft verða klædd með hljóðdempandi plötum í herbergjum en böð, geymslur, bílskúrar, forstofa og gangur á 1 hæð eru spörsluð og máluð. Í alrými á annari hæð kemur hljóðdempandi dúkur í hvítum lit.
Innréttingar
Allar innréttingar koma frá GKS.
Eldhús/böð , Hnotulíki,  innréttingar og tæki frá Nobilia í Þýskalandi.
Innbyggður ísskápur/frystir, sléttfellt helluborð, gufugleypir blæs beint út og innbyggð uppþvottavél fylgir öllum íbúðum.
Vaskar í eldhúsum eru sléttfelldir steyptir, svartir að lit með svörtum blöndunnartækjum. Mjúklokun á skúffum og skápum á baði og eldhúsi, hnífaparabakki og ruslafata fylgir. Blöndunartæki af vandaðri gerð. 
Baðherbergisinnrétting 100 cm með hvítri heilli plötu og handlaug. Speglaskápar með lýsingu ofan við vask. Stakur skápur við hlið handlaugar 50 cm breiður. Innrétting fyrir þvottavél/þurrkara er á baðherbergi á 1 hæð, skúffur fyrir neðan og skápar fyrir ofan. 2 stk 50 cm skápar er við hlið þessarar einingar.
Baðherbergi á 2. hæð er með 80 cm innréttingu og speglaskáp fyrir ofan.
Fataskápar eru úr Hnotulíki með 120 cm svörtum handföngum.
Skápar í hjónaherbergi eru 100+100 cm, fataslá, hillur og 4 innbyggðar skúffur í hvorum skáp. Fataskápur barnaherbergi 80 cm. Fataslá, hillur og 4 innbyggðar skúffur.
Forstofuskápar er 100+90 cm.
Innihurðir eru yfirfelldar hvítar, mött áferð.
Lýsing
Baðherbergi er með loftljósi og lýsingu í speglaskáp á 1. hæð en ofaná speglaskáp á annari hæð.
Alrými á annari hæð er með innfelldri lýsingu og dimmer. En dósum fyrir borðstofuljós og öðrum þess háttar.
Loftræsting
Vélrænt útsog er úr öllum votrýmum  svo og úr öllum eldhússviftum. 
Pípulagnir
Hiti er  í öllum gólfum.
Varmaskiptir er á neysluvatni.
Snjóbræðsla er á lokuðu frostlögskerfi.
  
ATH.
Minniháttar sprungur geta myndast á máluðum flötum nýbygginga á fyrstu mánuðum eftir afhendingu og telst slík sprungumyndun ekki til ágalla. 
3víddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar
 
Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á,  0,3% af brunabótamati eignar.


Byggingaverktaki: BF Byggingar ehf 
Hönnun: Anna Margrét Hauksdóttir  Arkitekt AVH ehf
Rafverktaki: Rafeyri ehf
Pípulögn: Bútur ehf
Málning: MSM ehf
Múrari: S. Guðmundsson ehf
Blikksmíði/loftræsting: Blikkrás ehf

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone