Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Bjarkarholt 9

270 Mosfellsbær

66.900.000 kr.

812.880 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501652

Fasteignamat

62.900.000 kr.

Brunabótamat

54.870.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
82,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 82,3 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með fallegu útsýni og bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Bjarkarholt 9 í miðbæ Mosfellsbæjar. Húsið er byggt 2020. Eignin er skráð 82,3 m2, þar af íbúð 78,0 m2 og geymsla 4,3 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Svalir í suðurátt. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi og fataskápur. 
Eldhús, stofa og borðstofa: Saman í rúmgóðu opnu rými. Falleg L-laga eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði. Gengið út á suðursvalir frá stofu. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1: (hjónaherbergi): Parket á gólfi og gott fataherbergi. 
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, innrétting og upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svalir: Rúmgóðar 6 m2 svalir til suð-austurs með frábæru útsýni.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign í kjallara, merkt 0021. Skráð 4,3 m2.
Bílastæði: Stæði merkt B47 fylgir eigninni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara hússins.

Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Matvöruverslun er á fyrstu hæð.

Verð kr. 66.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. mar. 2021
40.350.000 kr.
45.400.000 kr.
82.3 m²
551.640 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone