Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Vista
einbýlishús

Heiðvangur 11

220 Hafnarfjörður

159.900.000 kr.

590.037 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075231

Fasteignamat

153.850.000 kr.

Brunabótamat

122.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
271 m²
svg
8 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Björgvin Þór Rúnarsson lgf, Hrönn Ingólfsdóttir lgfs s: 692-3344 og Fasteignaland fasteignasala kynna afar glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum, með möguleika á aukaíbúð innst í botnlanga við Heiðvang 11 í Hafnarfirði. 

Húsið er frábærlega staðsett innst í botnlanga,í grónu hverfi og örstutt er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og aðra þjónustu. Húsið hefur fengið reglubundið viðhald og endurbætur síðustu árum.
Í eigninni eru fimm rúmgóð svefnherbergi, stór og glæsileg stofa með Drápuhlíðargrjóti sem prýðir arininn.
Tvö rúmgóð baðherbergi auk gestasalernis, fallegt eldhús með nýlegri innréttingu.
Bílskúrinn er stór, rúmgóður með gryfju og undir hluta hans er geymsla sem ekki er inni í fermetratölu. 
Garðurinn er stór og fallegur með nýlegum heitum potti. 
Lítið mál að útbúa ibúð á neðri hæðinni með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og innfeldu fatahengi.
Gesta Salerni: Inn af forstofunni er einnig gestasalerni með upphengdu salerni og vaski.
Hol: Þegar komið er inn úr forstofunni er komið inn í stórt og bjart hol sem er eins konar miðja eignarinnar. Á holinu er gengið inn í svefnálmuna,  í stofuna, í eldhúsið. Gólfefni eru parket á öllum þeim rýmum
Eldhús: Eldhúsið er stórt með mikilli og góðri innréttingu. Innrétting er á tvo veggi með efri og neðri skápum,eyjan er á færanleg (á hjólum).  Granít er í öllum borðplötum.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er inn af eldhúsinu. Hægt er að ganga út úr þvottaherberginu út á lóðina fyrir aftan húsið.
Baðherbergi: Aðalbaðherbergið er fallega endurnýjað með glæsilegum marmar á borðplötu, Stór sturta,góð eikar innrétting. Salernið er upphengt og opnanlegur gluggi er í rýminu.
Á efri hæð eru þrjú stór svefnherbergi öll með parketi á gólfi. Góðir fataskápar eru í tveimur af þremur herbergjunum en auka fataskápar eru til sem hægt er að bæta við ef aðilar vilja.
Svalir til austurs eru út úr hjónaherbergi. Hiti í gólfum; í anddyri og á öllum salernum.
Á neðri hæð eru 2 stór svefnherbergi, tölvuherbergi, gott alrými og útgangur í heitan pott á baklóð.  Einnig er á neðri hæðinni fallegt uppgert baðherbergi með stórri sturtu og gufu.
Allar lagnir fyrir eldhús eru í tölvuherberginu þar sem hægt væri að koma fyrir snotru eldhúsi ef fólk vill nýta sér það til að loka neðri hæðina af sem séríbúð (sérinngangur á baklóð)
Gluggar á áveðurshlið / austur, þarfnast viðhalds.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.

Endurbætur á síðustu árum að sögn eiganda:
Nýtt þak og þakkantur uppgerður / Ný 3ja fasa rafmagnstafla
Eldhúsinnrétting að hluta / Öll baðherbergi endurnýjuð
Gler endurnýjað að hluta / Bílskúrshurðir og aðrar útihurðar að hluta
Hleðslustöð / Ný hitaveitugrind / heitur pottur og stýringar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

  •  

img
Björgvin Þór Rúnarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Björgvin Þór Rúnarsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. okt. 2007
41.960.000 kr.
75.000.000 kr.
271 m²
276.753 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Björgvin Þór Rúnarsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.