Lýsing
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir nýlega bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð við Sjónarveg 5 í Urriðaholti(Garðabæ) Sér inngangur, verönd og þvottaaðstaða innan íbúðar.
Innréttingar frá Parka, heimilistæki frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi.
Gólfefni eru harðparket nema á baðherbergi sem er flísalagt
Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS 84 m².
Nánari lýsing
Anddyri: Gengið er um sérinngang beint að utan og komið í parketlagða forstofu með fataskáp.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð, samliggjandi eldhúsi.
Eldhús: Innrétting frá parka. Eyja sem hægt er að sitja við. Ofn í vinnuhæð. Gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingunni. Eldhúsið er opið til stofu/borðstofu
Hjónaherbergi: Rúmgott með tveimur fataskápum. Útgengt að verönd úr hjónaherbergi.
Barnaherbergi: Bjart og gott herbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, góð innrétting og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. “Labb-inn” sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Verönd: Frá hjónaherbergi er gengið út á hellulagða verönd.
Geymsla: Í sameign er sér geymsla sem fylgir íbúðinni
Hjólageymsla er staðsett í sameign.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.