Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
sumarhús

Leifsstaðabrúnir 13

605 Akureyri

104.900.000 kr.

618.150 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2338781

Fasteignamat

67.000.000 kr.

Brunabótamat

96.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2022
svg
169,7 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni

Lýsing

Leifsstaðabrúnir 13a - Glæsilegt og sérlega vandað sumarhús/heilsárshús á tveimur hæðum á fallegri eignarlóð (3050 m²) úr landi Leifsstaða í Vaðlaheiðinni - skráð stærð 169,7 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Efri hæð 74,8 m²:
Forstofa, eldhús, borðstofa, stofa, hjónaherbergi og baðherbergi. 
Neðri hæð 77,7 m²: Baðherbergi, þrjár geymslur (ein útigeymsla), svefnherbergi, gangur, þvottaaðstaða og bílskúr sem búið er að skipta upp í tvö rými. 
Geymsla 17,2 m²

* Húsið er timburhús, með skráð byggingarár 2022, byggt ofan á steypta neðri hæð og er steypt plata á milli hæða. 
* Neðri hæðin er einangruð að innan og utan og steinuð að utan. Efri hæðin er klædd með lerki. 

* Þakið er hefðbundið sperruþak klætt með Aluzink (bárujárni). Einangrunin liggur ofan á loftaplötunni. 
* Allar innréttingar á efri hæðinni eru sérsmíðaðar af Brúnás ehf.
* Gólfefni efri hæðar eru Quick step vínyl parket á alrými, 100% vatnsþolnar vínyl flísar í forstofu og flísar á baðherbergi. 
* Hljóðvistar dúkur er í öllum loftum efri hæðar og innfelld led lýsing.


Efri hæðin var innréttuð árið 2023
Forstofa er dökkum vínyl flísum á gólfi og sér smíðuðum skápum.
Eldhús, sérsmíðuðu ljós sprautulökkuð innrétting frá Brúnás með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Grá bekkplata. Vínyl parket er á gólif. Úr borðkróknum eru gluggar til þriggja átta og hurð til suðurs út á verönd.
Stofa er með vínyl parketi á gólfi og skemmtilegum bogadregnum vegg með gluggum með útsýni til suðurs og vesturs.
Hjónaherbergið er með vínyl parketi á gólfi og sérsmíðuðum ljós sprautulökkuðum fataskáp.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfum og ljósum á þremur veggjum, ljósri sprautulakkaðri innréttingu, upphengdu wc, walk-in sturtu og opnanlegum glugga. Hurð er út af baðherberginu á verönd. 

Neðri hæðin er innréttuð sem 2ja herbergja íbúð og geymslur. Þar eru álgluggar og 2,7 metra lofthæð. 
Bílskúr er með innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Gólf er steypt. Léttur veggur skiptir bílskúrnum upp í tvö rými og í innra rýminu er í dag vínyl parket á gólfi, ljós eldhúsinnrétting sjónvarpshorn. 
Gangur og þvottaaðstaða eru með vínylparketi á gólfi og hurð út til suðurs. Steyptur stigi er af ganginum og upp á efri hæð. 
Svefnherbergið er með vínylparketi á gólf og skemmtilegum bogadregnum glugga. 
Baðherbergi er með vínylparketi á gólfi, innréttingu, upphengdu wc og flísalagðri sturtu. Við hliðina á baðherberginu eru geymsla en þar er gert ráð fyrir að hægt sé að setja sauna.

Annað
- Gólfhiti er í öllum rýmum á báðum hæðum að útigeymslu undanskildri.
- Svalir/verönd eru með austur, suður og vesturhlið hússins, um 80 m², klæddar með lerki og gler handrið. 
- Útigeymsla verður einangruð að innan, múruð og með vængjahurð.
- Rúmgott bílaplan með möl í.
- Gróin og skjólsæl eignarlóð með malarstíg frá vegi að húsi.
- Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2025 er kr. 82.950.000.-
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone