Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og björt 151,9 fm, 4ra herbergja íbúð á 1.hæð (ekki jarðhæð) ásamt stæði í lokaðri bílgeymslu og stórum yfirbyggðum svölum á fallegum útsýnisstað á Seltjarnarnesi.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Tvö rúmgóð barnaherbergi eru samhliða og eru með góðum skápum. Hjónasvíta. Rúmgott herbergi með góðum skápum og borðkrók. Sér baðherbergi er inn af hjónaherbergi með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og hornbaðkari. Baðherbergi er flísalagt. Gestasalerni með lítilli innréttingu og sturtu. Eldhús er með vandaðri innréttingu og tækjum, barborði og opið inn í mjög rúmgóða stofu. Innréttingar hannaðar af Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttir. Lofthæð er 2,85 m en á baði, eldhúsi og þvottaherbergjum eru loft tekin niður og er því lofthæð 2,6 m. Fullkomið loftræsikerfi er í húsinu með bæði vélrænu útgsogi og ferskloftsinntöku sem ýtir undir góð loftskipti í ibúðum. Stofan er tvískipt og skiptist í borðstofu með útgengi á stórar yfirbyggðar og lokaðar svalir í s-vestur og bjarta og stofu með stórum glugga í suður. Frábært útsýni er úr íbúðinni til suðurs, vestur og austur. Svalirnar ná sól frá morgni til kvölds. Í kjallara er geymsla og stæði í lokaðri bílgeymslu.
GÓLFEFNI: Fallegt viðarparket er á öllum gólfum að undanskyldum votrýmum en þau eru flísalögð
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali s: 822 2307 eða olafur@miklaborg.is