Lýsing
Miklaborg kynnir:
Bjart og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og einstöku útsýni á rólegum og fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesi. Eignin er skráð 195 fm auk 13 fm sólskála sem er óskráður samtals 208 fm.
Húsið er á þremur pöllum og er teiknað af arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum hjá Teiknistofunni Óðinstorgi.
NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp og gólfhita. Inn af anddyri er gestasnyrting með nýlegum tækjum. Frá anddyri er innangengt í rúmgott þvottahús með skápum, lítilli geymslu og flísalögðum sturtuklefa. Opnanlegir gluggar eru í þvottahúsi og sturtuklefanum. Úr þvottahúsi er svo innangengt inn í bílskúr þar sem er hitaveituinntak og vaskur og hurð út á hellulagt bílastæði með snjóbræðslukerfi.
Úr forstofu er gengið upp stiga á miðpall hússins. Á vinstri hönd er svefnálma með þremur svefnherbergjum og baðherbergi með innréttingu, baðkari og gólfhita. Á svefnherbergisgangi eru skápar og góð vinnuaðstaða. Nýlegar hljóðdempandi loftaþiljur eru í svefnherbergjum og á ganginum. Af sama stigapalli er gengið inn í sólskála og þaðan út í gróinn og skjólgóðan garð sem snýr í suður.
Frá miðpalli er gengið upp stiga með marmaraþrepum upp á efri pall sem er eitt opið rými með fallegum arni fyrir miðju, mikilli lofthæð og gluggum í norður og suður. Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu, með góðu skápa- og vinnuplássi, og eldunareyju með innbyggðum skúffum og granít borðplötu, hannað af Berglindi Berndsen innanhúsarkitekt. Borðstofa og stofa eru rúmgóðar með einstöku útsýni í norður, yfir sjóinn, Esjuna, Akrafjall og Skarðsheiði.
Gólfefni: Flísar á anddyri, gestasnyrtingu og baðherbergi. Parket á stofum, eldhúsi, neðri stiga og svefnherbergjum. Dúkur á þvottahúsi og flotað gólf í sólskála.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasala í síma 822 2307 eða á olafur@miklaborg.is
Jón Rafn Valdimarsson, löggiltur fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu undanfarið og hefur það fengið gott viðhald.
2024 - þak málað og hljóðdempandi loftaþiljur settar í svefnherbergisálmu.
2022-2023 - Nýir forhitarar fyrir neysluvatn og ofna og nýir miðstöðvarofnar í stofu og á stigapalli.
2022 - Gestasnyrting og sturta í þvottahúsi endurnýjað og skipt um vatnslagnir þar, í þvottahúsi og bílskúr.
2019 - Sólskáli endurbyggður
2017 – Ný rafmagnstafla og gólfhiti í forstofu
2015 - Sérsmíðuð eldhúsinnrétting, ný tæki og endurnýjuð vatns- og frárennslislögn frá eldhúsi.
2009 – baðherbergi endurnýjauð (af fyrri eiganda).
Vel hannað og skipulagt fjölskylduhús í lokaðri götu, á vinsælum stað, miðsvæðis á Seltjarnarnesi, þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og útivistarperlur.