Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Jón Guðmundsson
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hverfisgata 94

101 Reykjavík

109.900.000 kr.

897.876 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2500408

Fasteignamat

99.000.000 kr.

Brunabótamat

80.310.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
122,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, vandaða og vel skipulagða 122,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu og glæsilegu fjölbýlishúsi með lyftu, vel staðsettu í miðborg Reykjavíkur.  Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.  Íbúðinni fylgja bæði hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs og svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi.  Eignin er í leigu til 1. desember 2024

Mikið er lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan sameiginlegan suður garð.

* Sérsmíðaðar vandaðar innréttingar úr svartbæsaðri eik, sem ná upp í loft
* Gólhitalagnir eru í íbúðinni með sér stýringu fyrir hvert rými
* Bæði svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs

* Borðplötur úr kvartsteini á eldhúsinnréttingu og eyju í eldhúsi og á innréttingu í baðherbergi
* Myndavélakerfi er við inngang íhúsið og myndavéladyrasími, rafmagnsopnun með talnastýringu er á hurðum í sameign.
* Sameign hússins er mjög snyrtileg og bílakjallari er lokaður og upphitaður. Tengi fyrir hleðslustöð er komið að sérbílastæði íbúðarinnar

Nánari lýsing:
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með miklum fataskápum. 
Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með miklum fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengi á hellulagða og skjósæla verönd til suðurs.
Baðherbergi, rúmgott, flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, vegghengt wc, stór flísalögð sturta með sturtugleri og innrétting með quartz á borðum.
Þvottaherbergi, rúmgott og flísalagt með miklum innréttingum með vinnuborði, vaski og stæðum fyrir vélar í vinnuhæð. 
Samliggjandi stofur, parketlagðar og stórar með innfelldri lýsingu í loftum að hluta.
Eldhús, opið við stofur og með mjög fallegum og miklum dökkbæsuðum viðarinnréttingum með flísum á milli skápa, kvartsteini á borði, tveimur innbyggðum ísskápum, innbyggðri uppþvottavél og spanhelluborði. Stór eyja er í eldhúsi með kvartsteini á borði, vaski og áfastri borðaðstöðu. 
Úr eldhúsi og stofum er útgengi á rúmgóðar svalir til norðurs með viðarklæddu gólfi og glerhandriði.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð. Stæðið er merkt B3.
Sérgeymsla, 5,6 fermtetrar að stærð er vel staðsett innaf bílastæði í bílageymslu.

Á 1. hæð hússins eru:
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð.
Sameiginlegt líkamsræktarrými, er innaf hjólageymslu og er það með tækjum.

Sameiginleg mjög falleg lóð til suðurs með hellulögn og tyrfðum flötum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla þjónustu, veitingahús, söfn o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. des. 2021
65.500.000 kr.
86.500.000 kr.
122.4 m²
706.699 kr.
9. okt. 2019
58.700.000 kr.
68.800.000 kr.
122.4 m²
562.092 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone