Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Lynggata 3

210 Garðabær

62.900.000 kr.

988.994 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2362688

Fasteignamat

55.400.000 kr.

Brunabótamat

39.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
63,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð með suðursvölum í nýlegu lyftuhúsi að Lynggötu 3 í Garðabæ. Húsið var byggt árið 2018 af ÞG verktökum. Góð aðkoma er að húsinu og búið er að koma upp rafhleðslustöð á sameiginlegu bílaplani.
Eignin er alls skráð 63,6 fm. og skiptist í anddyri, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem rúmar stofu, borðstofu, og eldhús. Frá stofu er útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Göngufæri er í leik- og grunnskóla og stutt í fallegar gönguleiðir. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða á ragnar@fstorg.is
​​​​
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með flæðandi harðparketi á gólfi og loftháum tvöföldum fataskáp frá GKS.
Eldhús: Opið eldhús búið vandaðri ljósri eikarinnréttingu frá GKS með ljúflokun á skúffum og skápum. Bakaraofn, helluborð, gufugleypir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Öll eldhústæki eru frá AEG og harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu rými með stórum gluggum, fallegu útsýni og harðparketi á gólfi. Útgengt á suðursvalir. 
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og sérsmíðuðum veglegum og loftháum fataskápum frá GKS.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innréttingin er frá GKS og með handlaug, neðri skápum og speglaskáp. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með hertu gleri ("walk in" sturta). Tengi og innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vinnuborði og efri skápum. 
Geymsla: Eigninni fylgir 7,7 fm. sérgeymsla á jarðhæð. Að auki er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Garður: Góð aðkoma er að húsinu og virkar sameignin og umhverfið snyrtilegt. Sameiginlegur garður er með leiktækjum.

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk. Glæsilegir golfvellir, vötn, hæðir og göngu- og hjólastígar umlykja hverfið. Urriðaholtsskóli er í göngufæri og starfar á tveimur skólastigum, leik- og grunnskólastigi.
Samkvæmt vef Garðarbæjar: Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities. Urriða­holt er þétt­býli í náinni tengingu við nokkur helstu úti­vistar­svæði höfuð­borgar­svæðis­ins, ósnortna nátt­úru og góðar sam­göngu­æðar sem stytta leiðir í allar áttir.

Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á góðum stað í Urriðaholti Garðabæ. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem verslanir og skóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. sep. 2021
37.450.000 kr.
46.200.000 kr.
63.6 m²
726.415 kr.
23. apr. 2018
13.750.000 kr.
35.400.000 kr.
63.6 m²
556.604 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone