Lýsing
Miklaborg kynnir:Fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð með sérinngangi og sólríkum suðurpalli við inngang. Heillandi friðað húsi sem er afar vel staðsett í miðborginni. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, herbergi og baðherbergi og þvottaaðstaða.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Gengið er inn bakvið hús, inn í port hægra megin við húsið.
Komið er beint inn í forstofu frá sérinngangi íbúðarinnar. Við innganginn er skjólgóður og sólríkur pallur til suðurs sem bíður upp á ýmsla möguleiika. Dúkur er á gólfi forstofu og inn af henni er þvottaaðstaða.
Komið er í gang með skáp. Stofan er björt og falleg lögð ljósu harðparketi eins og öll rými íbúðarinnar fyrir utan gang og baðherbergi.
Í opnu eldhúsi er hvít innrétting með efri og neðri skápum. Svartar flísar eru á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbegi snýr frá Laugavegi. Baðherbergi er með máluðum flísum á gólfi sturta er í baðkari. Skápur með spegli fyrir ofan vask.
Stór verönd við inngang snýr til suðurs. Frábær fyrir grillið og einnig möguleiki að setja heitan pott.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is