Lýsing
Trausti fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða 40 fm. 2ja herbergja íbúð að Laugavegi 81 í Reykjavík. Húsið stendur á gatnamótum Laugavegs og Barónsstígar og snúa gluggar út á Barónsstíg.
Nánari lýsing:
Forstofa er lítil og með parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu, snyrtileg innrétting og parket á gólfi. Í dag er eigandi með þvottavél og þurrkara í eldhúsi en tengi er einnig fyrir slíkt í sameiginlega þvottahúsi í kjallara.
Stofa er björt og með parket á gólfi.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara þar sem hver íbúð hefur sér tengi.
Sérgeymsla er í kjallara í sameign.
Þak hússins var endurnýjað árið 2021.
Um er að ræða fallega íbúð í miðbænum þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða tölvupósti kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.